Collector
100 sumarstörf í Reykjavík fyrir ungmenni fædd 2009 | Collector
100 sumarstörf í Reykjavík fyrir ungmenni fædd 2009
Fréttastofa RÚV

100 sumarstörf í Reykjavík fyrir ungmenni fædd 2009

Reykjavíkurborg býður 100 störf fyrir 17 ára ungmenni í sumar. Þetta kemur fram í svari borgarinnar við fyrirspurn fréttastofu. Störfin eru ætluð ungmennum fæddum árið 2009 og fyrr. Opnað hefur verið fyrir skráningu á biðlista fyrir sumarstörfin hér . Á vefsíðu borgarinnar kemur fram að leitað verði í biðlistann ef ekki tekst að manna störf með umsækjendum sem sóttu um innan umsóknarfrests. Í apríl á síðasta ári samþykkti borgarstjórn tillögu þess efnis að sköpuð yrðu 100 störf fyrir 17 ára ungmenni. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. RÚV / Ragnar Visage

Go to News Site