Collector
Landskjörstjórn samþykk tveimur nýjum tillögum að orðalagi í ESB-atkvæðagreiðslu | Collector
Landskjörstjórn samþykk tveimur nýjum tillögum að orðalagi í ESB-atkvæðagreiðslu
Fréttastofa RÚV

Landskjörstjórn samþykk tveimur nýjum tillögum að orðalagi í ESB-atkvæðagreiðslu

Landskjörstjórn telur báðar tillögur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að orðalagi spurningar í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið skýrar, skiljanlegar og hlutlausar. Nefndin óskaði umsagnar landskjörstjórnar um tvær tillögur að spurningu þar sem svarmöguleikar eru já og nei: Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið? Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Bryndís Haraldsdóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segir nefndina á síðasta snúningi um að skila utanríkismálanefnd sinni umsögn með nýrri tillögu að orðalagi. Landskjörstjórn gerði athugasemd við orðalag spurningarinnar samkvæmt þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Samkvæmt henni var spurningin eftirfarandi: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ og svarkostirnir voru þessir: „Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu“ og „Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“ Landskjörstjórn taldi orðalag spurningarinnar fela í sér þá forsendu að aðildarumsókn Íslands hafi ekki verið dregin til baka, en sagði þá forsendu umdeilda innan samfélagsins. Landskjörstjórn taldi því betra að spurningin yrði orðuð þannig að ekki fælist í henni afstaða til stöðu viðræðna Íslands við Evrópusambandið. Telur sig geta sinnt kynningarskyldu þrátt fyrir skamman tímafrest Í umsögn sinni vegna nýju tilagnanna, sem skilað var 1. maí en birt á vef Alþingis í dag , segir að þær samræmist báðar þeim meginsjónarmiðum sem landskjörstjórn benti á í umsögn sinni til utanríkismálanefndar. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd óskaði einnig eftir upplýsingum tímasetningu atkvæðagreiðslunnar og hvernig landskjörstjórn hygðist standa að kynningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Í umsögn landskjörstjórnar segir að hún hafi gert samning við Lagastofnun Háskóla Íslands um að vinna að kerð kynningarefnisins og sú vinna sé þegar hafin. „Eins og fram kom í umsögn landskjörstjórnar til utanríkismálanefndar geta ýmsar áskoranir fylgt þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst nk. þar sem tímafrestir eru skammir. Landskjörstjórn telur sig engu að síður geta uppfyllt skyldu sína skv. 1. mgr. 52. gr. kosningalaga og staðið fyrir víðtækri kynningu á því málefni sem borið er undir þjóðaratkvæði.“

Go to News Site