Collector
Rannsaka atvikið í Leipzig sem manndráp | Collector
Rannsaka atvikið í Leipzig sem manndráp
Fréttastofa RÚV

Rannsaka atvikið í Leipzig sem manndráp

Maður sem ók inn í mannfjölda í Leipzig í dag átti við andleg vandamál að stríða, að sögn yfirvalda. Tveir eru látnir og að minnsta kosti tveir alvarlega særðir . Maðurinn var handtekinn á vettvangi. Atvikið er til rannsóknar sem tvö manndráp og tvær tilraunir til manndráps. Maðurinn er 33 ára þýskur ríkisborgari búsettur í Leipzig. Lögreglan sagði á blaðamannafundi fyrir skömmu að hann hefði ekki streist á móti handtöku. Þar kom einnig fram að maðurinn væri veikur, ætti við geðræn vandamál að stríða og hefði jafnvel fengið æðiskast.

Go to News Site