Fréttastofa RÚV
Katla vakti fyrst athygli aðeins 15 ára þegar hún bar sigur úr býtum í Músíktilraunum. Þá hefur hún einnig starfað með tveimur bræðrum sínum í hljómsveitinni Celebs. Hún ólst upp vestur á fjörðum, nánar tiltekið á Suðureyri við Súgandafjörð, og er nú flutt aftur heim í kyrrðina fyrir vestan eftir að hafa búið í Reykjavík síðustu ár. „Alveg síðan ég fór suður í nám hefur alltaf verið eitthvað í hjartanu sem kallar á mann, mann langar alltaf að vera fyrir vestan,“ segir Katla sem hefur hafið störf sem leikskólastjóri í leikskóla á Ísafirði en hún hefur nýlokið námi í leikskólakennarafræðum. Katla ræddi tónlistina, lífið fyrir vestan og leikskólakennaranámið í Miðstöðinni. Þú getur séð viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan. Miðstöðin er á dagskrá öll fimmtudagskvöld á RÚV.
Go to News Site