Collector
Fjórar vindmyllur Vaðölduvirkjunar komnar til landsins | Collector
Fjórar vindmyllur Vaðölduvirkjunar komnar til landsins
Fréttastofa RÚV

Fjórar vindmyllur Vaðölduvirkjunar komnar til landsins

Efniviður í rúmlega fjórar vindmyllur af þeim 28 sem reistar verða í fyrstu vindorkuvirkjun landsins, Vaðölduveri, er kominn til landsins. Vindmyllurnar komu með skipum frá Rotterdam í Þýskalandi, en þriðja skipið kom í Þorlákshöfn í gærkvöld. Fyrsti flutningur á vindmyllunum er áætlaður aðfaranótt fimmtudags og munu flutningar fara fram að nóttu til, sex daga vikunnar, næstu níu vikur. Hver bílalest getur orðið allt að 250 metra löng, en farnar verða um 350 ferðir milli Þorlákshafnar og Vaðölduvers, sem er um 130 kílómetrar, á 30 km hraða. Þetta eru einhverjir mestu þungaflutningar sem ráðist hefur verið í á Íslandi.

Go to News Site