Collector
Valsmenn knúðu fram oddaleik við Grindvíkinga | Collector
Valsmenn knúðu fram oddaleik við Grindvíkinga
Fréttastofa RÚV

Valsmenn knúðu fram oddaleik við Grindvíkinga

Valur með Kristófer Acox innanborðs vann Grindavík í kvöld.Mummi Lú Oddaleik þarf í undanúrslitaeinvígi Vals og Grindavíkur á Íslandsmóti karla í körfubolta. Valur vann fjórða leik liðanna að Hlíðarenda í kvöld 85-79 og jafnaði þar með metin í einvíginu í unnum leikjum í 2-2. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit og því þarf oddaleik til að skera úr um það. Hann verður að óbreyttu spilaður á miðvikudagskvöld. Þá er einnig ráðgert að Tindastóll og Stjarnan eigist við í oddaleik hins undanúrslitaeinvígisins.

Go to News Site