Collector
Sólmyrkvinn og „Taylor Swift-áhrifin“ | Collector
Sólmyrkvinn og „Taylor Swift-áhrifin“
Fréttastofa RÚV

Sólmyrkvinn og „Taylor Swift-áhrifin“

Sólmyrkvinn í ágúst gæti skapað verðbólguskot á versta tíma. Þetta kemur fram í nýrri hagspá Landsbankans. Hann verður í miðri verðsöfnunarviku Hagstofunnar og eykur því líkurnar á því að forsenduákvæði kjarasamninga bresti. „Það þarf ekki mikið til að verðbólgan endi yfir 4,7%. Ef áhrifin af sólmyrkvanum verða þau að verðbólgan mælist eitthvað aðeins hærri þá gæti það verið nóg til þess að forsenduákvæðið virkist.“ Hjalti Óskarsson, hagfræðingur í greiningardeild Landsbankans, ber þetta saman við svokölluð „Taylor Swift-áhrif“. „Taylor Swift er auðvitað rosalega vinsæl. Það var sérstaklega 2024 sem að það mældust veruleg áhrif þegar hún var að koma við í borgum og bæjum,“ segir Hjalti. „Hvort sem það er Taylor Swift eða sólmyrkvi þá bara getur það haft áhrif á hagkerfið.“

Go to News Site