Fréttastofa RÚV
Úr leik City og Everton í kvöld.EPA / ADAM VAUGHAN Stuðningsfólk Arsenal fagnaði sennilega hressilega í kvöld þó Lundúnaliðið væri alls ekki að spila. Manchester City sem á í harðri baráttu við Arsenal um enska meistaratitilinn í fótbolta tapaði nefnilega dýrmætum stigum í toppbaráttunni þegar City og Everton gerðu 3-3 jafntefli. Jeremy Doku kom City í 1-0 en tvenna frá Thierno Barry og eitt mark frá Jake O'Brien fyrir Everton komu Everton-liðinu í 3-1. City náði þó að sækja eitt stig úr leiknum því Erling Haaland minnkaði muninn í 3-2 áður en Doku skoraði jöfnunarmarkið þegar langt var komið fram í uppbótartíma og 3-3 lauk. Arsenal hefur fimm stiga forskot á City en City á þó leik til góða.
Go to News Site