Fréttastofa RÚV
Valur og FH munu mætast í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta á fimmtudagskvöld, en það varð ljóst í kvöld þegar FH jafnaði metin í einvíginu í 2-2 með því að vinna fjórða úrslitaleik liðanna, 37-36 í Kaplakrika í kvöld eftir tvíframlengdan spennutrylli. Daníel Freyr Andrésson markvörður FH reyndist hetjan í blálokin. FH-ingar réðu ferðinni í fyrri hálfleik og voru komnir fjórum mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 19-15. Flest benti þá til þess að oddaleik þyrfti í einvígið, en Valsmenn mættu af krafti í síðari hálfleik og Björgvin Páll Gústavsson hrökk í gírinn í markinu. Gunnar Róbertsson jafnaði fyrir Valsmenn í 24-24 þegar síðari hálfleikur var liðlega hálfnaður og við tók spenna. FH-ingar kveiktu þá aftur á perunni og virtust lítið spenntir fyrir því að bikarinn færi á loft í Kaplakrika í kvöld og Valsmenn myndu fagna. Við tók góður kafli FH-inga sem komust fljótlega þremur mörkum yfir í stöðunni 27-24. Það lifði þó áfram í glæðunum hjá Val og Arnór Snær Óskarsson minnkaði muninn í eitt mark úr hraðaupphlaupi í 29-28 þegar rúmar tvær mínútur lifðu leiks. Valur fékk svo nokkur tækifæri til að jafna en Jón Þórarinn Þorsteinsson markvörður FH-inga reyndist öflugur stoppari í markinu allt þar til fimm sekúndur voru eftir þegar téður Arnór Snær skoraði og jafnaði þar með í 29-29 og FH tók strax leikhlé. FH-ingar keyrðu af stað á móti framliggandi vörn FH en fengu dæmdan á sig ruðning og því þurfti að framlengja leikinn. Allt var í járnum fyrst um sinn í framlengingunni en FH komst þó marki yfir, 31-30 rétt áður en fyrri hálfleik hennar lauk og byrjaði svo með boltann í seinni hálfleik og skoraði úr sinni fyrstu sókn þar og komst þá tveimur mörkum yfir. Björninn var þó ekki unninn og Val tókst á lygilegan hátt að vinna muninn upp og Allan Norðberg jafnaði í 34-34 rétt áður en flautan gall og því þurfti aðra framlengingu. Þar skoruðu Valsmenn fyrstu tvö mörkin en FH jafnaði þó jafn harðan, í 36-36. Daníel Freyr Andrésson varði svo mikilvæg skoti í marki FH sem varð til þess að Símon Michael Guðjónsson kom FH yfir í 37-36 þegar rúm mínúta var eftr af seinni framlengingunni. Valsmenn köstuðu boltanum útaf í næstu sókn en unnu svo boltann fljótlega aftur og ruku í hraðaupphlaup og skoruðu. Dómarar leiksins dæmdu þó vítakast þar sem Daníel markvörður FH kom út á móti Valsmanninum. Daníel varði svo vítakastið frá Arnóri Snæ og tryggði FH mikilvægan sigur, 37-36. Staðan í úrslitaeinvíginu er því orðin jöfn, 2-2 þar sem bæði lið hafa unnið tvo leiki hvort lið. Fram undan er oddaleikur sem spilaður verður að Hlíðarenda á fimmtudagskvöld og hefst klukkan 19:30. Ljóst er að sigurliðið þar verður krýnt Íslandsmeistari þetta árið.
Go to News Site