Collector
Kurteis og endurtekin kosningabarátta | Collector
Kurteis og endurtekin kosningabarátta
Fréttastofa RÚV

Kurteis og endurtekin kosningabarátta

„Fjölbreytt en flatt,“ segir Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, stjórnmálafræðingur og ráðgjafi, um kosningabaráttu komandi sveitarstjórnarkosninga. Í Silfri kvöldsins var rýnt í sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram þann 16. maí. Gestir kvöldsins voru sammála um að kosningabaráttan í ár væri heldur kurteisleg og bæri með sér blæ fyrri kosningabaráttu. „Fólk er ekki að æsa sig á kaffistofum landsins, eða allavega finnst manni ekki, það er margt annað í fréttum og auðvitað verða sveitastjórnarkosningar lítilfjörlegar þegar við erum með Trump í nánast fyrstu frétt hvern einasta fréttatíma,“ segir Bryndís. Eva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði segir að þrátt fyrir kurteisi baráttunnar núna geti orðið hatrammar deilur á sveitarstjórnarstiginu. „Sérstaklega kannski í sveitarfélögum sem eru ekki stór en það nær bara ekki alltaf upp á yfirborðið, inn til fréttastofunnar.“ Eva telur jafnvel marga upplifa sig fegna því að ekki séu mikil átök, þau geti oft reynst erfið og þungbær, í ár séu vinsemd og kurteisi í fyrirrúmi. Forsætisráðherra áberandi Sunna Sæmundsdóttir, fréttastjóri á fréttastofu Sýnar, segir að sýnileiki forsætisráðherra, Kristrúnar Frostadóttur, hafi verið áberandi í kosningabaráttunni í sveitarstjórnarkosningum, hún hafi sérstaklega verið áberandi í framsókn Samfylkingarinnar í Kópavogi. „Hún er auðvitað pólitíkus og það er starf hennar að hafa skoðanir og koma þeim í farveg þannig að það er kannski ekki skrítið að hún taki þátt en hún er svakalega sýnileg, og jafnvel sýnilegri en aðrir frambjóðendur.“ Magnús Geir Eyjólfsson þingfréttamaður RÚV bendir á að undanfarin ár hafi Samfylkingin í Reykjavíkurborg verið í eldlínunni og öll vandamál höfuðborgarsvæðisins sögð vera upprunnin í borginni. Því sé aukin áhersla á flokkinn í Kópavogi mögulega tilraun til þess að breyta narratívinu. „Þetta er kannski tilraun Samfylkingarinnar til þess að beina spjótunum annað, þá Kópavoginum í þessu tilfelli.“ Magnús segir að núverandi kosningabarátta minni mikið á kosningabaráttur fyrri ára Frambjóðendur verði að standast storminn Sunna Sæmundsdóttir segir að fólk hafi í auknum mæli áhuga á mannlegum þætti frambjóðendanna, fólk sé í framboði og að sjálfsagt mál sé að þau sitji fyrir misalvarlegum spurningum. „Þeir séu spurðir um að ríða, drepa, giftast og borða kjúklingavængi og fara í erfið atvinnuviðtöl, ég meina það fara ekki allir í framboð, þú gerir þetta ekki nema þú getir staðið af þér storminn.“ Stjórnmálaflokkar hafa verið iðnir við það að auglýsa sína frambjóðendur á samfélagsmiðlum, nálganirnar eru mismunandi og segir Eva Marín mannlega þáttinn vera þar áberandi. „Þetta er brosandi glatt fólk mjög oft úti í náttúrunni, margir eru með hundinn sinn og dýralífið með. Það er svona verið að vekja upp jákvæðar tilfinningar hjá fólki gagnvart þessum einstaklingum.“ Hér má sjá Silfur kvöldsins í heild sinni. Sveitarstjórnarkosningar eru á næsta leiti. Gestir Silfursins segja að kosningabaráttan í ár beri með sér kurteislegan blæ og að henni svipi sömuleiðis til fyrri kosningabaráttu.

Go to News Site