Fréttastofa RÚV
Stjórnvöld í Bretlandi og Sádi Arabíu hvetja Írana og Bandaríkjamenn til að gæta stillingar og finna aðrar leiðir en vopnaviðskipti til að ljúka stríðinu. Íranar sendu skæðadrífu eldflauga og dróna að Sádi Arabíu í dag að sögn yfirvalda þar. Donald Trump forseti greindi áður frá því að Bandaríkjaher hefði skotið að hraðbátum á Hormússundi skömmu eftir að tekið var til við að fylgja flutningaskipum gegnum það. „Utanríkisráðuneyti Sádi Arabíu lýsir áhyggjum af nýorðinni stigmögnun átaka og áréttar brýna þörf til að draga umsvifalaust úr henni,“ segir í yfirlýsingu. Ráðuneytið kveðst styðja allar leiðir til að komast að diplómatískri lausn. Breski forsætisráðherrann Keir Starmer tekur í svipaðan streng og hvetur Írani til að setjast að samningaborði með Bandaríkjunum.
Go to News Site