Collector
Dolly Parton: „ómögulegt að spranga með svima um sviðið á 13 sentímetra háum hælum“ | Collector
Dolly Parton: „ómögulegt að spranga með svima um sviðið á 13 sentímetra háum hælum“
Fréttastofa RÚV

Dolly Parton: „ómögulegt að spranga með svima um sviðið á 13 sentímetra háum hælum“

Dolly Parton hefur frestað nokkrum tónleikum vegna veikinda. Hún varð áttræð í janúar og hafði um hríð undirbúið tónleikahald í gleðiborginni Las Vegas. Í myndskilaboðum á samfélagsmiðlum sagðist hún færa aðdáendum sínum góðar og slæmar fréttir. Þær góðu væru að hún brygðist vel við lyfjum og annarri meðferð og að heilsan batnaði dag frá degi. Vondu fréttirnar væru að hún væri ekki alveg nógu hraust til að koma fram á sviði að svo stöddu. Dolly Parton tilgreindi ekki hvað hrjáir hana en sagði í léttum tóni að það væri ómögulegt að spranga með svima um sviðið á þrettán sentímetra háum hælum og burðast með banjó, gítara og þess háttar í fanginu. Aðdáendur hennar vissu manna best að það myndi hún alltaf gera. „Þið vitið að ég mun alltaf elska ykkur,“ sagði Dolly og vísaði þannig til eins frægasta lags síns. Læknarnir segðu unnt að vinna bug á veikindunum og þeir ynnu hörðum höndum að því að bæta meltingu hennar og ónæmiskerfi. Dolly tilkynnti á seinasta ári að hún væri hvergi nærri dáin eftir að systir hennar bað fólk um að biðja fyrir henni. Carl, eiginmaður hennar til áratuga, lést í fyrra. Söngkonan tilkynnti einnig að hún ynni hörðum höndum að opnun hótels og safns í Nashville og væri að semja söngleik sem settur verður upp á Broadway.

Go to News Site