Collector
Börn og ungmenni 17 ára og yngri frá frítt í sund | Collector
Börn og ungmenni 17 ára og yngri frá frítt í sund
Fréttastofa RÚV

Börn og ungmenni 17 ára og yngri frá frítt í sund

Börn og ungmenni 17 ára og yngri með lögheimili í Reykjavík fá frían aðgang í sund og á Ylströndina frá og með 5. maí. Ný gjaldskrá hjá sundlaugum Reykjavíkurborgar, Ylströndinni og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum tekur gildi í dag. Í tilkynningu Reykjavíkurborgar segir að breytingunum sé ætlað að gera reglulega notkun aðgengilegri og einfalda fyrirkomulag aðgangs fyrir gesti. Með breytingunum lækkar kostnaður árskorts í sundlaugar Reykjavíkur úr 48.000 krónum í 34.000 krónur. Þá lækkar árskort barna í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn úr 17.600 krónum í 4.000 krónur. Á Ylströndina lækkar árskortið um 21%. Breytingarnar ná til Sundlauga Reykjavíkur, Ylstrandarinnar og Fjölskyldu- og húsdýragarðsinsRúv / Ragnar Visage

Go to News Site