Fréttastofa RÚV
FH-ingar tryggðu sér í gærkvöld oddaleik í einvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta. Liðið hafði betur gegn Val í háspennandi tvíframlengdum leik þar sem Daníel Freyr Andrésson, markvörður FH, reyndist hetjan. FH var með undirtökin í leiknum en tvisvar tókst Valsmönnum að jafna metin og knýja fram framlengingu. Lokasekúndur seinni framlengingarinnar voru svo ótrúlegar. FH komst yfir, 37-36, þegar um mínúta var eftir. Valsmenn misstu boltann í næstu sókn en unnu hann svo jafn harðan aftur. Björgvin Páll þrumaði boltanum fram völlinn þar sem Daníel Montoro stökk upp, greip hann og kom í markið eftir að hafa lent í samstuði við Daníel Frey, markvörð FH. Dómarar leiksins ákváðu að nýta sér myndbandsdómgæslu og skoða atvikið aftur þar sem niðurstaðan var ekki mark heldur vítakast fyrir Valsmenn. Arnór Snær Óskarsson, sem skoraði 15 mörk í leiknum, þar af 9 úr vítaköstum, steig á vítalínuna en Daníel Freyr varði og kom í veg fyrir að leikurinn færi í vítakastkeppni. „Ég hef aldrei lent í þessari stöðu á ferlinum held ég, það kemur bara löng sending og ég er inni í teig þannig að mér finnst mjög skrítið að ég ætli að fara að bakka eitthvað niður á línu þannig ég reyni bara að fara í boltann með honum,“ segir Daníel Freyr. Daníel Freyr Andrésson, markvörður FH, var hetja liðsins í gærkvöld þegar hann varði vítakast undir lok leiks í tvíframlengdri viðureign FH og Vals. Fram undan er oddaleikur um Íslandsmeistaratitilinn. Hann viðurkennir að hafa reglurnar ekki alveg á hreinu hvað varðar svona augnablik en reiknar með að Daníel hafi fyrst náð til boltans og þess vegna hafi vítakast verið dæmt. „Ég veit ekki einu sinni reglurnar með þetta svo ég einhvern veginn var að búast við allt frá því að við ættum boltann í að ég væri að fá bara rautt spjald.“ Þegar Arnór Snær kom svo á vítalínuna segist Daníel hafa haft það bak við eyrað að hann væri búinn að skjóta ansi oft í gegnum fæturna á honum og skora. „En svo fer maður bara eftir einhverri tilfinningu líka svo það var ekkert stærra plan en það.“ FH-ingar fengu að bragða á framlengingum og vítakastkeppnum í undanúrslitunum í fyrra og Daníel segir það ekki hafa komið til greina að detta aftur úr leik á þann hátt. Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, tók í sama streng í viðtali við RÚV eftir leikinn. „Ekki enn ein vítakeppnin, ég er búinn að fara í þær fullmargar hérna síðustu ár með FH liðinu.“ Það verður því leikið til þrautar um Íslandsmeistaratitilinn en oddaleikur Vals og FH fer fram á Hlíðarenda á fimmtudaginn kemur.
Go to News Site