Fréttastofa RÚV
Ertu í vandræðum með að ákveða hvað þú átt að kjósa 16. maí? Þá gæti kosningapróf RÚV mögulega hjálpað þér. Opnað var fyrir prófið í morgun. Smelltu hér til að taka kosningapróf RÚV. RÚV hefur boðið upp á kosningapróf í mörgum umliðnum kosningum til sveitarstjórna, Alþingis og forseta. Prófið í ár er sambærilegt því sem notað var fyrir þingkosningarnar 2024, nema að þessu sinni er það að hluta til sérsniðið að hverju sveitarfélagi fyrir sig. Margar spurninganna eða fullyrðinganna í prófinu eru almennar og varða stóru línurnar í pólitíkinni, með áherslu á málefni sveitarfélaganna, en svo eru einnig sértækari spurningar sem snúa að völdum sveitarfélögum, eða jafnvel einungis að þínu sveitarfélagi. Prófið getur gefið þér vísbendingu um hvernig afstaða þín rímar við afstöðu frambjóðenda og flokka, en það er rétt að taka fram að prófið veitir auðvitað ekki endanlegt og afdráttarlaust svar við spurningunni um hvað þú átt að kjósa. Í boði í 50 sveitarfélögum Prófið er í boði fyrir íbúa 50 sveitarfélaga. Undanskilin eru þau sjö sveitarfélög þar sem ekki fer fram listakosning, heldur svokölluð óbundin kosning, enda eru þar engir frambjóðendur eða framboðslistar fyrir fólk að máta sig við. Þá undanskiljum við líka þau fjögur sveitarfélög þar sem aðeins einum lista var skilað sem er sjálfkjörinn, enda fara þar ekki fram neinar kosningar. Hvar er óbundin kosning og hvar er sjálfkjörið? Ef engum framboðslistum er skilað í sveitarfélagi fer þar fram svokölluð óbundin kosning, sem er í raun eins konar persónukjör. Þar eru allir með kosningarétt í sveitarfélaginu í kjöri, nema þeir sem skorast sérstaklega undan því (það geta þeir gert sem eru yfir 65 ára og þeir sem hafa nýlega setið í sveitarstjórn). Í ár er óbundin kosning í þessum sjö sveitarfélögum: Ásahreppi Dalabyggð Eyja- og Miklaholtshreppi Fljótsdalshreppi Grýtubakkahreppi Kaldrananeshreppi Langanesbyggð Ef aðeins einum framboðslista er skilað í sveitarfélagi er hann sjálfkjörinn og þá fara ekki fram neinar kosningar. Í ár er sjálfkjörið í þessum fjórum sveitarfélögum: Kjósarhreppi Snæfellsbæ Tjörneshreppi Vopnafjarðarhreppi Yfir 1.200 frambjóðendur í prófinu Allir frambjóðendur og listar í þessum 50 sveitarfélögum hafa átt kost á að svara prófinu undanfarna viku. Yfir 1.200 frambjóðendur hafa svarað prófinu, sem eru um 38% frambjóðenda í þeim sveitarfélögum þar sem prófið er í boði og meira en nokkru sinni fyrr í kosningaprófum RÚV. Þessir frambjóðendur eru af 173 framboðslistum, en engin svör hafa borist frá frambjóðendum fimm lista á landinu í jafnmörgum sveitarfélögum. Það er mikilvægt að hafa í huga að RÚV getur ekki svarað prófinu fyrir frambjóðendur eða lista. Ef þú saknar þess að fá upp samsvörun við þinn eftirlætisframbjóðanda þá er það líklega vegna þess að hann hefur ekki svarað prófinu. Til að koma til móts við frambjóðendur sem eru seinir fyrir hefur kosningaritstjórn RÚV ákveðið að halda frambjóðendagáttinni opinni til miðnættis annað kvöld. Frambjóðendur geta því enn bætt sér inn í prófið, en athugið að ný svör frambjóðenda geta ekki birst almenningi fyrr en morguninn eftir að þau berast. Byggir á sænskum grunni Prófið nú, eins og fyrir þingkosningarnar 2024, byggir á grunni frá sænska sjónvarpinu, SVT. Algrímið á bak við sænska kosningaprófið – Valkompassen – hefur verið gert opinbert og er öllum aðgengilegt á vefnum. Reiknilíkan þess, sem kosningapróf RÚV notar, hefur verið notað í kosningaprófum fyrir kosningar á Norðurlöndunum, í Þýskalandi og víðar. Hér má lesa nánar um kosningapróf RÚV og hvernig það er unnið. Kosningapróf RÚV verður opið fram yfir kosningarnar 16. maí 2026 og er öllum aðgengilegt hér.
Go to News Site