Fréttastofa RÚV
Arsenal mun leika til úrslita í Meistaradeild Evrópu í fótbolta en það varð ljóst eftir 1-0 heimasigur liðsins á Atlético Madríd í kvöld. Bukayo Saka skoraði markið sem skildi liðin að. Fyrri leik liðanna á Spáni í síðustu viku lauk með 1-1 jafntefli og því vann Arsenal einvígið samanlagt 2-1. Þetta er aðeins í annað sinn sem Arsenal kemst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en það gerðist síðast fyrir 20 árum. Skytturnar töpuðu þá fyrir Barcelona í úrslitaleiknum árið 2006. Það ræðst annað kvöld hvort mótherjinn verði PSG frá Frakklandi eða þýska liðið Bayern München. Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar verður svo spilaður í Búdapest í Ungverjalandi laugardagskvöldið 30. maí.
Go to News Site