Collector
Mjög kærkomið að Herjólfur hafi komist til Landeyjahafnar | Collector
Mjög kærkomið að Herjólfur hafi komist til Landeyjahafnar
Fréttastofa RÚV

Mjög kærkomið að Herjólfur hafi komist til Landeyjahafnar

„Það er mjög kærkomið að það sé búið að opna höfnina,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs. Ferjan sigldi til Landeyjahafnar í kvöld. „Hún gekk bara vel, siglingin upp eftir, gaman að endurnýja kynnin við Landeyjahöfn. Það voru margir sem fóru með, um hundrað manns í hvorri ferð og fullt bíladekkið,“ segir Ólafur. „Dýpi til siglinga á háflóðinu það er bara mjög gott en það er náttúrulega það að tíminn á flóðinu færist, en við vonumst til þess að þetta verði fljótlega þannig að við þurfum ekki alltaf að vera á háflóðinu.“ Vonast eftir úrbótum Aðstæður til siglinga til og frá Vestmannaeyjum hafa verið sérstaklega krefjandi síðustu mánuði, meðal annars vegna veðurs, sjólags og bilunar í rafmótor Herjólfs. „Það er búið að ganga á ýmsu hjá okkur það sem af er ári,“ segir Ólafur. Opnun Landeyjahafnar sé fagnaðarefni en tilfinningar séu blendnar því hún sé ekki tilbúin. „Ef ekkert er að gert þá megum við alveg reikna með því að þetta endurtaki sig. Við vonumst til þess að þessar aðstæður og þessi vetur verði til þess að úrbætur verði gerðar alveg hið snarasta.“ Viðgerð standi næstu vikur Rafmótorinn er í viðgerð í Hollandi og á Ólafur von á að hún taki einhverjar vikur. „Við gleðjumst í dag og fögnum vorkomunni, þó að reyndar hafi snjóað hressilega þegar Herjólfur sigldi inn í Landeyjahöfn áðan. Það er allavega vorboði að minnsta kosti að höfnin skuli vera opnuð og svo treystum við á að það sé bjart sumar fram undan og þá verði veðurguðirnir okkur hliðhollir og fólkið flykkist til okkar.“

Go to News Site