Fréttastofa RÚV
Átta listar eru í framboði á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum í ráðhúsinu. Þátttakendur eru: Þórhallur Jónsson fyrir Akureyrarlistann Sunna Hlín Jóhannesdóttir fyrir Framsóknarflokkinn Óðinn Svan Óðinsson fyrir L-listann Hlynur Jóhannsson fyrir Miðflokkinn Sindri S. Kristjánsson fyrir Samfylkinguna Berglind Ósk Guðmundsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir fyrir Viðreisn Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir fyrir VG Um 20.000 manns búa á Akureyri og hefur fjölgað um tæplega þúsund frá síðustu kosningum. Meirihluta í bæjarstjórn mynda fulltrúar L-listans, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Umsjónarmenn eru Anna Kristín Jónsdóttir og Valgeir Örn Ragnarsson.
Go to News Site