Fréttastofa RÚV
Njarðvík mun leika til úrslita á Íslandsmóti kvenna í körfubolta þriðja árið í röð. Þetta varð ljóst í kvöld þegar Njarðvíkurliðið vann oddaleik sinn við Grindavík í undanúrslitum, 83-72 og einvígi liðanna þar með 3-2 í unnum leikjum. Grindavík vann fyrstu tvo leiki rimmunnar og því var endurkoma Njarðvíkinga fullkomnuð með sigrinum í kvöld. Njarðvík mun mæta Haukum í úrslitaeinvíginu rétt eins og í fyrra en þá höfðu Haukar betur. Fyrsti úrslitaleikurinn verður spilaður í Ólafssal á Ásvöllum í Hafnarfirði á föstudagskvöld. Vinna þarf þrjá leiki í úrslitum til að verða Íslandsmeistari.
Go to News Site