Collector
Opnaði sig um átröskun á samfélagsmiðlum: „Það getur ekki verið að ég sé með átröskun“ | Collector
Opnaði sig um átröskun á samfélagsmiðlum: „Það getur ekki verið að ég sé með átröskun“
Fréttastofa RÚV

Opnaði sig um átröskun á samfélagsmiðlum: „Það getur ekki verið að ég sé með átröskun“

Það eru margar sögur sem við sjáum á samfélagsmiðlum sem tengjast þyngd og þyngdarstjórnun úr ólíkum áttum. Nýverið birti Gabriel Xavier Harasumczuk myndband á TikTok þar sem hann opnaði sig um ofþyngd sem síðar þróaðist út í átröskun. „Svo benti mjög náinn einstaklingur mér á að ég gæti verið með átröskun, en ég var bara nei, það getur ekki verið, ég trúi því ekki, en með tímanum fattaði ég bara að þetta gæti verið satt.“ Gabríel segist hafa fengið mikið af jákvæðum viðbrögðum frá fólki í kjölfar birtingar myndbandsins, fólk hafi til dæmis sent honum persónuleg skilaboð og opnað sig um sína reynslu. „Þetta eina myndband sem var gert til þess að hjálpa einni manneskju hjálpaði greinilega mun fleira fólki.“ Karlar opni sig minna Ímynd karlmennskunnar segir Gabríel að hafi áhrif á það að karlar tali minna um matartengd vandamál, ímyndin sé að karlar eigi að vera harðir og ekki með sterkar tilfinningar. „Ég veit að það er 100% fullt af strákum þarna úti sem eru bara eins og ég og þora bara ekki að viðurkenna það að þeir séu með átröskun.“ Elín Vigdís Guðmundsdóttir, formaður SÁTT, sem eru samtök fólks með átröskun og tengdar raskanir, segir þýðingarmikið að ungur strákur opni sig um sína reynslu, mikil skömm fylgi því að vera með átröskun og mikilvægt sé að opna á umræðuna. „Það er einn af hverjum tíu sem glímir við átraskanir á lífsleiðinni og það eru 25% stráka sem eru með átröskun, nema þeir vita það ekki oft fyrr en miklu seinna, þeir átta sig ekki á því að þetta sé átröskun.“ Elín segir að birtingarmynd átraskana sé öðruvísi hjá drengjum, þeir séu oft með þráhyggju er varðar matarræði og eigi í erfiðleikum með að stjórna neyslunni. Sjúkdóminn segir Elín vera lífsgæðaskerðandi og jafnvel lífshættulegan, enn í dag loði gríðarleg skömm við átröskun. Í umræðuþættinum Torginu var fjallað um þyngdarstjórnun, offitu og fordóma. Gestir Torgsins að þessu sinni voru Sólveig Sigurðardóttir, Tryggvi Helgason, Birna Þórisdóttir, Jórunn Edda Óskarsdóttir, Rut Eiríksdóttir, Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir og Elín Vigdís Guðmundsdóttir. Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Gabríel Xavier opnaði sig um átröskun sem hann glímdi við á samfélagsmiðlum. Hann segist hafa opnað á umræðuna vegna skorts á umfjöllun um sjúkdóminn á meðal drengja.

Go to News Site