Collector
Taskmaster: „Þetta er fullorðið fólk að leika sér“ | Collector
Taskmaster: „Þetta er fullorðið fólk að leika sér“
Fréttastofa RÚV

Taskmaster: „Þetta er fullorðið fólk að leika sér“

„Við köllum hann í daglegu tali þrautakóng, svona okkar á milli,“ segir Ari Eldjárn þegar hann er spurður um hvað í ósköpunum þættirnir Taskmaster séu. „Þetta eru þættir sem ganga út á að það eru alltaf sömu fimm keppendurnir og tveir afar kvikyndislegir menn, sem eru ég og Jóhann Alfreð, leggja ýmsar þrautir fyrir keppendur,“ bætir hann við. „Sveppi orðaði þetta eiginlega best: Þetta er fullorðið fólk að leika sér.“ „Þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert,“ segir Snjólaug Lúðvíksdóttir ein af þátttakendum. Þættirnir eru upprunalega breskir og Snjólaug hefur lengi verið aðdáandi þeirra. Þú getur séð skemmtilegt viðtal við þau Snjólaugu og Ara í spilaranum hér að ofan. Taskmaster eru í sýningum á SÝN+. Miðstöðin er nýr þáttur um dægurmenningu öll fimmtudagskvöld á RÚV.

Go to News Site