Fréttastofa RÚV
Farþegar verða fluttir frá borði Hondius-skemmtiferðaskipsins á mánudaginn samkvæmt spænska innanríkisráðuneytinu. Alls eru átta manns um borð sem eru annaðhvort með staðfest hantaveirusmit eða eru talin vera smituð af veirunni. Hondius siglir nú frá Grænhöfðaeyjum til Kanaríeyja. Ráðgert er að skipið komi til hafnar á Tenerife á laugardaginn. Áhöfn og farþegar skipsins verða um borð í skipinu fram á mánudaginn eða þar til flugvélar lenda sem munu flytja fólkið burt. Heilbrigðisráðuneyti Argentínu ætlar að taka prufur úr nagdýrum og rannsaka þær í borginni Ushuaaia í Argentínu. Hantaveiran getur borist úr nagdýrum í menn en Hondius skemmtiferðaskipið hóf siglingu frá Ushuaaia 1. apríl sl. Rannsakendur í Argentínu telja hugsanlegt að hollensk hjón sem veiktust af veirunni hafi smitast við fuglaskoðun í ruslahaug áður en þau komu um borð í skemmtiferðaskipið. Þau gætu þó einnig hafa smitast af veirunni í Chile eða Uruguay, sem þau ferðuðust um áður en þau komu til Argentínu. Hjónin eru látin, auk annars manns sem einnig var farþegi í skemmtiferðaskipinu. Alls voru 88 farþegar og 59 manna áhöfn af 23 þjóðernum um borð í skipinu þegar sigling þess hófst 1. apríl.
Go to News Site