Collector
13 slösuðust í árás Úkraínumanna á fjölbýlishús | Collector
13 slösuðust í árás Úkraínumanna á fjölbýlishús
Fréttastofa RÚV

13 slösuðust í árás Úkraínumanna á fjölbýlishús

13 eru slasaðir, þar af eitt barn, eftir árás úkraínska hersins á landamæraborgina Bryansk í Rússlandi í nótt samkvæmt héraðsstjóranum Aleksandr Bogomaz. Hann sagði í færslu á Telegram að árásin hefði verið gerð á tvö fjölbýlishús og eyðilagt um 20 íbúðir og 40 bíla. Þá greindi borgarstjóri Moskvu, Sergei Sobianin, frá því að að minnsta kosti fimm drónar hefðu verið stöðvaðir sem hefðu verið á leið til Moskvu. Rússar hafa lýst yfir einhliða vopnahléi á morgun og laugardaginn, í tilefni af föðurlandsdeginum mikla, sigurdegi síðari heimsstyrjaldarinnar. Úkraínumenn lýstu sömuleiðis yfir vopnahléi í gær. Rússar virtu ekki það vopnahlé. Kyiv Independent hefur eftir Volodymyr Zelensky að Rússar hafi brotið vopnahlé Úkraínumanna 1.820 sinnum í gær. Að minnsta kosti fjórir voru drepnir í árásum Rússa í norðurhluta Sumy-héraðs og einn særðist í árás í borginni Dnipro í gær. Ónafngreindur háttsettur embættismaður sagði í viðtali við Kyiv Independent að Úkraínumenn sjái ekki ástæðu til að virða vopnahlé Rússa. Rússar hafa varað Úkraínumenn við því að gera árásir á Moskvu á föðurlandsdeginum mikla og hóta miklum árásum á Kyiv ef vopnahlé þeirra verður ekki virt. Þeir hafa einnig varað erlenda diplómata við því að vera í Kyiv ef Úkraínumenn virða ekki vopnahléið.

Go to News Site