Collector
Börn numin á brott með skipulögðum hætti og skýrum vilja | Collector
Börn numin á brott með skipulögðum hætti og skýrum vilja
Fréttastofa RÚV

Börn numin á brott með skipulögðum hætti og skýrum vilja

Sönnum eða sanngjörnum friði verður ekki náð í Úkraínu án þess að þúsundir barna sem numin voru á brott af Rússum verði skilað aftur til Úkraínu. Þetta sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sérstakur erindreki framkvæmdastjóra Evrópuráðsins um málefni úkraínskra barna, í viðtali í sjónvarpsþætti á enskumælandi stöð pólska ríkissjónvarpsins í gær, TVP World . Allt að 20.000 börn numin á brott Yfirvöld í Úkraínu segja að allt að 20.000 börn hafi verið numin á brott með ólöglegum hætti og flutt til Rússlands og Belarús þegar innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Óháð rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna um málefni Úkraínu greindi frá því í mars að yfirvöld á hernumdum svæðum í Úkraínu hefðu framið glæpi gegn mannkyni með því að nema á brott og flytja úkraínsk börn nauðug burt. Þórdís Kolbrún segir að brottnám barnanna sé ekki afleiðing stríðsátaka heldur hafi börnin verið flutt á brott með skipulögðum hætti og með skýrum vilja rússneskra stjórnvalda. Hægt gengur að fá börnin tilbaka Þórdís Kolbrún sagði að enn væru alltof fá börn sem hefðu verið skilað til baka þó að auðvitað skipti sérhvert barn máli. Það taki of langan tíma að fá börnin til baka og hætta væri á að mörg þeirra barna yrðu fullorðin áður en þau gætu sameinast fjölskyldum sínum á ný. Hún segir að börn sem fá að snúa aftur heim þurfi mörg hver sálfræðiaðstoð, aðstoð við að vinna upp skóla, læknisaðstoð og ýmsa aðra aðstoð. „Þegar barnæskunni er rænt af börnum þá tekur það langan tíma að læra að treysta á ný,“ sagði Þórdís Kolbrún í viðtalinu við TVP World. Draga þarf Rússa til ábyrgðar fyrir stríðsglæpi sína Alþjóða sakamáladómstóllinn hefur gefið út handtökuskipan á Vladimír Pútín Rússlandsforseta og umboðsmann barna, Mariu Lvova-Belova fyrir brottnám úkraínskra barna frá Úkraínu. Þórdís Kolbrún segir mikilvægt að Rússar verði dregnir til ábyrgðar fyrir þessa stríðsglæpi því ef ekki, þá sé verið að senda þau skilaboð að það sé í lagi að fremja stríðsglæpi sem þessa. Hún segir að á mánudag verði fundur í Brussel með Evrópusambandinu, Úkraínu og Kanada þar sem farið verður yfir stöðu mála og næstu skref í því að fá fleiri börn til baka. Hægt er að horfa á viðtalið við Þórdísi Kolbrúnu í heild sinni á vefsíðu TVP World .

Go to News Site