Fréttastofa RÚV
Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir mikilvægt að undirstrika það að þrátt fyrir að meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar hyggist mæla með því að börn og fjölskyldur með börn verði ekki vistuð í brottfararstöð verði frelsissvipting þeirra ekki minni. „Það kannski lítur svolítið vel út og aðeins verið að fegra hlutina þegar það er verið að segja að börnin verði ekki vistuð í þessari brottfararstöð sem þetta frumvarp fjallar um en það breytir því ekki að þau verða samt vistuð annars staðar en þá bara með fjölskyldunum sínum en samt sem áður erum við að tala um frelsissviptingu upp að allt að þremur sólarhringum,“ segir Tómas Þór. Álitið ekki birt fyrr en eftir kosningar Nefndarálit allsherjar- og menntamálanefndar hefur ekki enn verið klárað en Tómas Þór gerir ráð fyrir að fjallað verði ítarlegar um það hvernig mælt verði með að börn og fjölskyldur með börn verði vistuð. Hann segir að nefndarálitið verði ekki birt fyrr en að sveitarstjórnarkosningum loknum. Hann telur það ekki tilviljun. „Það vita það allir í pólitísku landslagi á Íslandi að þetta mál er að reynast Samfylkingunni mjög erfitt,“ segir hann. „En þannig að ég ætla ekki að skipta mér af því hvenær þau taka þetta mál út en það liggur í hlutarins eðli að það er engin tilviljun að þetta á að gerast tveimur dögum eftir kosningar og það er ekki verið að segja sem sagt frá öllu eins og staðan er akkúrat núna.“ Breytingartillagan komin frá ráðuneytinu Varðandi tilkomu breytingartillögunnar kemur fram í minnisblaði frá dómsmálaráðuneytinu, dagsettu í febrúar, að dómsmálaráðherra teldi rétt að koma til móts við þær áhyggjur sem fram komu í athugasemdum við frumvarpið. Nauðsynlegt sé að taka af allan vafa um að tryggja eigi fullan aðskilnað fjölskyldna með börn frá öðrum og ítreka réttindi barna meðan á vistun stendur. Í minnisblaðinu segir að samkvæmt frumvarpinu verði einungis heimilt að vista börn ásamt fjölskyldum sínum í mjög skamman tíma eða þrjá daga sem hægt verði að framlengja að hámarki í níu daga við sérstakar aðstæður. Slíkt kæmi til greina þegar tímasetning flutnings úr landi væri staðfest. Óheimilt yrði með öllu að vista fylgdarlaus börn í brottvísunarstöðinni. Ráðuneytið lagði þá til breytingu á texta frumvarpsins þar sem áður sagði að fjölskyldum verði séð fyrir sérstökum vistarverum sem tryggja fullnægjandi friðhelgi þeirra. Með breytingunni ætti fjölskyldum með börn að vera séð fyrir sérstökum vistarverum sem tryggja fullnægjandi friðhelgi þeirra í húsnæði sem er eingöngu ætlað fjölskyldum með börn. Málið enn bundið trúnaði Aðspurður hvort fyrirkomulagið hafi verið rætt á fundi nefndarinnar segir Tómas að trúnaður ríki um það sem fram komi í nefndum Alþingis. „Þrátt fyrir að þetta hafi farið af stað í fréttum í gær, ég verð allavega að fá að virða þann trúnað,“ segir Tómas og vísar meðal annars í orð Gríms Grímssonar sem sagði í viðtali á Vísi.is í gær að börn yrðu vissulega vistuð en þá utan brottfararstöðvarinnar. „En aftur bendi ég á það að það liggur í hlutarins eðli að þau verða samt sem áður vistuð í lokuðu úrræði þannig að þó að þú sért ekki frelsissviptur í brottfararstöðinni þá verður það bara annars staðar,“ segir hann. „En það er að sjálfsögðu meirihlutans, Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins að útskýra það betur,“ segir Tómas.
Go to News Site