Fréttastofa RÚV
Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir mikilvægt að undirstrika að þrátt fyrir að meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis hyggist mæla með því að börn og barnafjölskyldur verði ekki vistuð í brottfararstöð verði frelsissvipting þeirra ekki minni. „Það kannski lítur svolítið vel út og aðeins verið að fegra hlutina þegar það er verið að segja að börnin verði ekki vistuð í þessari brottfararstöð sem þetta frumvarp fjallar um en það breytir því ekki að þau verða samt vistuð annars staðar en þá bara með fjölskyldunum sínum. Samt sem áður erum við að tala um frelsissviptingu upp að allt að þremur sólarhringum,“ segir Tómas Þór. Álitið ekki birt fyrr en eftir kosningar Ekki hefur enn verið lokið við álit allsherjar- og menntamálanefndar en Tómas Þór gerir ráð fyrir að fjallað verði ítarlegar um hvernig mælt verði með að börn og barnafjölskyldur verði vistuð. Nefndarálitið verði ekki birt fyrr en að sveitarstjórnarkosningum loknum. Hann telur það ekki tilviljun. „Það vita allir í pólitísku landslagi á Íslandi að þetta mál er að reynast Samfylkingunni mjög erfitt,“ segir hann. „Ég ætla ekki að skipta mér af því hvenær þau taka þetta mál út en það liggur í hlutarins eðli að það er engin tilviljun að þetta á að gerast tveimur dögum eftir kosningar og það er ekki verið að segja frá öllu eins og staðan er akkúrat núna.“ Breytingartillagan kemur frá ráðuneytinu Breytingartillagan kemur frá dómsmálaráðuneytinu. Í minnisblaði dagsettu í febrúar segir að ráðherra telji rétt að bregðast við þeim áhyggjum sem viðraðar voru í athugasemdum við frumvarpið. Nauðsynlegt sé að taka af allan vafa um að fullur aðskilnaður fjölskyldna með börn frá öðrum verði tryggður og ítreka réttindi barna meðan á vistun stendur. Í minnisblaðinu segir að samkvæmt frumvarpinu verði einungis heimilt að vista börn ásamt fjölskyldum sínum í mjög skamman tíma, eða þrjá daga, sem hægt verði að framlengja að hámarki í níu daga við sérstakar aðstæður. Slíkt kæmi til greina þegar tímasetning flutnings úr landi hefði verið staðfest. Óheimilt yrði með öllu að vista fylgdarlaus börn í brottvísunarstöðinni. Ráðuneytið lagði þá til breytingu á texta frumvarpsins þar sem áður sagði að fjölskyldum yrði séð fyrir sérstökum vistarverum sem tryggðu fullnægjandi friðhelgi þeirra. Með breytingunni ætti fjölskyldum með börn að vera séð fyrir sérstökum vistarverum sem tryggja fullnægjandi friðhelgi þeirra í húsnæði sem er eingöngu ætlað fjölskyldum með börn. Málið enn bundið trúnaði Tómas segir að trúnaður ríki um það sem kemur fram í nefndum Alþingis þegar hann er spurður hvort fyrirkomulagið hafi verið rætt á fundi nefndarinnar. „Þrátt fyrir að þetta hafi farið af stað í fréttum í gær, ég verð alla vega að fá að virða þann trúnað,“ segir Tómas og vísar meðal annars í orð Gríms Grímssonar sem sagði í viðtali á Vísi.is í gær að börn yrðu vissulega vistuð en þá utan brottfararstöðvarinnar. „En aftur bendi ég á að það liggur í hlutarins eðli að þau verða samt sem áður vistuð í lokuðu úrræði þannig að þó að þú sért ekki frelsissviptur í brottfararstöðinni þá verður það bara annars staðar.“ „En það er að sjálfsögðu meirihlutans, Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins að útskýra það betur,“ segir Tómas.
Go to News Site