Fréttastofa RÚV
Shivon Zilis, fyrrverandi stjórnarmaður í gervigreindarfyrirtækinu OpenAI, segir að auðkýfingurinn Elon Musk hafi boðið henni gjafasæði árið 2020 og í framhaldinu feðrað fjögur börn hennar. Þetta kom fram í vitnisburði hennar í gær í máli Musks á hendur OpenAI. Hann reynir nú að fá því hnekkt fyrir dómstólum að OpenAI verði áfram hagnaðardrifið fyrirtæki. Hann tók þátt í því að stofna OpenAI árið 2015 og sat í stjórn fyrirtækisins til 2018. Zilis hefur um árabil starfað sem áhættufjárfestir í Kísildal og verið hátt sett í tveimur fyrirtækjum Musks, Teslu og Neuralink. Hún sat í stjórn OpenAI 2020-2023. Hún segir að þau Musk hafi átt í ástarsambandi fyrir um áratug. Hann hafi boðið henni gjafasæði árið 2020, eftir að sambandinu lauk. Elon Musk á að minnsta kosti 14 börn með fjórum konum. Ætluðu að halda faðerninu leyndu Upphaflega gerðu Musk og Zilis með sér trúnaðarsamning um að halda faðerni barnanna leyndu. Hún greindi Sam Altman, framkvæmdastjóra OpenAI, ekki frá því fyrr en ári eftir að fyrstu börnin fæddust, tvíburar fæddir 2021, að Musk væri faðir þeirra. Altman vildi samt hafa Zilis áfram í stjórn fyrirtækisins. Lögmenn OpenAI hafa ýjað að því að Zilis hafi lekið upplýsingum um fyrirtækið í Musk eftir að hann yfirgaf það. Zilis hætti hjá fyrirtækinu í mars 2023, á svipuðum tíma og Musk hleypti af stokkunum gervigreindarspjallmenninu xAI sem er í beinni samkeppni við ChatGPT.
Go to News Site