Collector
Flugmaður segir líklegt að Icelandair ætli sér að stunda félagsleg undirboð á Möltu | Collector
Flugmaður segir líklegt að Icelandair ætli sér að stunda félagsleg undirboð á Möltu
Fréttastofa RÚV

Flugmaður segir líklegt að Icelandair ætli sér að stunda félagsleg undirboð á Möltu

Flugmaður sem starfaði hjá Icelandair í 43 ár segist telja að félagið vilji komast yfir flugrekstrarleyfi Play á Möltu til að spara sér starfsmannakostnað. Hann heitir Ágúst Håkonsson og vann hann hjá Icelandair frá því árið 1983 og þar til í febrúar á þessu ári. „Ég get ímyndað mér að það sé helst vegna þess að þeir sjá fyrir sér að ráða starfsfólk á staðnum á contract-kjörum eða starfsmannaleigukjörum sem þeir geta þá ráðið og rekið eftir hentugleikum á hverjum tíma,“ segir Ágúst. Sagt var frá þessum fyrirætlunum Icelandair í byrjun apríl og vöktu tíðindin mikla athygli. Helsta ástæðan fyrir þessari athygli sem tíðindin fengu var sú að sá grunur vaknaði að Icelandair ætlaði sér með þessu að fara að stunda félagsleg undirboð gegn starfsfólki og losna undan kostnaði við kjarasamninga starfsfólks. Icelandair er næststærsti vinnustaður Íslands, á eftir Landspítalanum. Þar vinna um 3500 manns eða tæplega eitt prósent af íslensku þjóðinni. Ágúst hefur skrifað grein um þessar fyrirætlanir Icelandair sem birt verður á næstunni í fréttabréfi Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). Rætt er við Ágúst og fjallað um þessa grein hans í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér: Flugmaður sem starfaði hjá Icelandair í 43 ár segist telja að flugfélagið ætli sér ráða starfsfólk í gegnum Möltu til að spara sér kostnað. Hann hefur skrifað gagnrýna grein um málið. Telur Icelandair vilja komast undan íslenskum kjarasamningum Hvað á Ágúst við með þessari kenningu sinni um að Icelandair ætli sér að fara að stunda félagsleg undirboð á Möltu? Telur hann að Icelandair ætli sér að ráða flugmenn, flugfreyjur og jafnvel flugvirkja til sín í gegnum starfsmannaleigur? „Ég sé allt þrennt fyrir mér. Í dag eru þeir á vissan hátt að nýta flugvirkja frá starfsmannaleigum í þessum AM-verkefnum erlendis. Flugmenn, það væri alveg hægt að sjá það fyrir sér að þeir ætli að ráða mannskap sem tengist Möltudæminu og það sama með flugfreyjur,“ segir Ágúst. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, vill ekki koma í viðtal um stöðu viðræðna um kaupin á maltverska félaginu þegar eftir því er leitað. Hann segir í sms-skilaboðum til fréttastofu að viðræður um viðskiptin á Möltu standi yfir og að ekkert nýtt sé að frétta af þeim. Í viðtali við Þetta helst í byrjun apríl sagði Bogi að ekki stæði til að Icelandair ætlaði sér að fara að notast við starfsmannaleigur til að ráða til sín fólk á Möltu. Frétt og fundur veldur pirringi Fréttin um þessi fyrirhuguðu Möltuviðskipti hefur valdið ugg og pirringi hjá einhverjum sem starfa hjá Icelandair þó að erfiðlega gangi að fá fólk til að ræða þetta opinberlega. Samkvæmt heimildum Þetta helst funduðu forsvarsmenn Fly Play Europe, meðal annars Sigurður Örn Ágústsson, með Boga Nils Bogasyni í höfuðstöðvum Icelandair í lok apríl. Þessi fundur fór ekki vel í einhverja starfsmenn Icelandair þegar sást til forsvarsmanna Fly Play Europe hjá Icelandair og dreifðust tíðindin hratt meðal starfsfólks. Frá því Icelandair sagði frá þessum fyrirhuguðu viðskiptum með Möltufélag Play hefur gengið erfiðlega að fá forsvarsmenn Félags íslenskra atvinnuflugmanna til að tjá sig um þetta mál og sömuleiðis Flugfreyjufélags Íslands. 600 flugmenn starfa hjá Icelandair og kann að vera að ákvörðun flugfélagsins um að eiga hlut í maltversku flugrekstrarleyfi kunni að hafa áhrif á einhverja þeirra. Um 1000 til 1200 flugfreyjur vinna sömuleiðis hjá Icelandair. Segir bara eitt sambærilegt flugfélag vera á Möltu Eitt af því sem vekur sérstaka athygli í grein Ágústs er hversu fá gild flugrekstrarleyfi eru á Möltu. Þau eru einungis 52 talsins og það er mjög sjaldgæft að stór og þekkt flugfélög sem líkja má við Icelandair að einhverju leyti séu þar með starfsemi. Ryanair og Wizz-air eru með starfsemi þar en þetta eru lággjaldaflugfélög með allt öðruvísi rekstrarmódel en Icelandair. Eina flugfélagið sem er á Möltu sem líkja má við Icelandair er Eurowings Europe sem er í eigu Lufthansa, segir Ágúst. „Það sem kallast í þessu legacy-flugfélag eru þessi stóru flugfélög innan Evrópu. Við getum talað um British Airways, Air France, Lufthansa og þess konar félög. Icelandair er svona á vissan hátt legacy-flugfélag. Af þessum félögum er eingöngu Lufthansa-Group sem hefur séð hag sinn í því að fara þangað niðureftir og fá flugrekstrarleyfi fyrir Eurowings,“ segir Ágúst og bætir því við að notkun flugfélaga eins og Icelandair á Möltu sé undantekning og alls ekki regla.

Go to News Site