Collector
Hanna Katrín gagnrýnir stuðningsmenn ÍBV og beinir spjótum að Miðflokknum | Collector
Hanna Katrín gagnrýnir stuðningsmenn ÍBV og beinir spjótum að Miðflokknum
Fréttastofa RÚV

Hanna Katrín gagnrýnir stuðningsmenn ÍBV og beinir spjótum að Miðflokknum

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur brugðist við fregnum af fordómafullum söngvum sem stuðningsmenn ÍBV sungu í garð Hafdísar Renötudóttur, markvarðar Vals og íslenska landsliðsins, í viðureign liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins á þriðjudag. Hafdís er samkynhneigð og snúa söngvarnir að því. ÍBV hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem félagið biður Hafdísi afsökunar. Málið er nú á borði Handknattleikssambands Íslands sem kveðst líta það alvarlegum augum. Í færslu sem Hanna Katrín birti á Facebook síðu sinni í dag fer ráðherra hörðum orðum um stuðningsmenn Vestmannaeyjaliðsins. Hún segir fordóma sem þessa ekki eiga sér stað í tómarúmi. „Mikið hljóta stuðningsmenn ÍBV, þessa öfluga íþróttafélags, að skammast sín fyrir framgöngu þeirra sem gerðu aðsúg að markmanni Vals í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil í kvennahandbolta núna í vikunni,“ segir Hanna Katrín í upphafi færslunnar. Hún segist gera ráð fyrir því að bæði félagið og Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, taki málinu alvarlega. Atvikið endurspegli sýnilegt bakslag í réttindum hinsegin fólks á Íslandi. Í færslunni beinir Hanna Katrín spjótum sínum einnig að Miðflokknum og umræðu flokksins að undanförnu gagnvart hinsegin fólki. „Til að ná þessu fyrirheitna ríki sínu herjar Miðflokkurinn nú á almenning með innfluttum fordómum. Stefið í fordómarausinu er að aukin réttindi hinsegin fólks þýði minni réttindi annarra,“ segir Hanna Katrín. Hún segir uppáhaldsiðju Miðflokksmanna vera að misnota íslenska fánann í fordómafullri orðræðu um málefni hinsegin fólks. „Þess vegna er rétt að draga fram að sem afrekskona í íþrótt sinni, landsliðskona sem hefur borið hróður Íslands víða, hefur Hafdís Renötudóttir gert margfalt meira til að heiðra íslenska fánann en allir Miðflokksmenn til samans. Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér.“

Go to News Site