Fréttastofa RÚV
Sendiherra Danmerkur á Íslandi og framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar beittu sér bæði gegn því að umdeild grænlensk heimildarmynd yrði sýnd í Norræna húsinu í mars. Frá þessu greinir fagblað danska blaðamannasambandsins, Journalisten. Myndin, Hið hvíta gull Grænlands, var tekin úr sýningu á DR í febrúar og ritstjóri á fréttastofu DR sagði af sér. Hið hvíta gull Grænlands átti að sýna í Norræna húsinu 22. mars, og boð á sýninguna var sent danska sendiráðinu 19. mars. Skömmu síðar var sýningin tekin af dagskrá. Journalisten vitnar í frétt sinni í tölvupóstsamskipti milli Sabina Westerholm, forstjóra Norræna hússins, og Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Danmerkur á Íslandi, frá 19. mars, sem fjölmiðillinn hefur undir höndum. Um hvað fjallar myndin og hvers vegna er hún umdeild? Hið hvíta gull Grænlands fjallar um hvernig Danir högnuðust á greftri kríolíts úr námu í Ivittuut nálægt Arsuuk í Grænlandi. Í henni kemur fram að heildarhagnaður fyrirtækjanna sem stóðu að námugreftrinum á 130 ára skeiði til ársins 1987 nam um 400 milljörðum danskra króna. Það jafngildir um 7.900 milljörðum íslenskra króna. Meðal gagnrýni sem myndin hefur fengið á sig er að upphæðirnar séu misvísandi og þar sé fremur einblínt á veltu námuvinnslunnar en hagnað. Í tölvupóstinum þakkar Sabina Erik fyrir samtalið og fyrir að hafa vakið athygli hennar á „vandanum við fyrirkomulag“ sýningarinnar (d. problematikken i vores arrangement). Hún hafi rætt málið innanhúss og við Norrænu ráðherranefndina. „Karen Ellemann hafði raunar sjálf samband í dag í sömu erindagjörðum, og lagði áherslu á að ekki væri hægt að sýna myndina án ítarlegrar umræðu sem setur hana í rétt samhengi,“ skrifaði Sabina í tölvupóstinum til Eriks. Utanríkisþjónustan á ekkert minnisblað um símtal Eriks og Sabinu Í skriflegu svari við fyrirspurn Journalisten segir Sabina að danski sendiherrann hafi gert henni grein fyrir umræðum um myndina í Danmörku. Journalisten óskaði eftir minnisblaði vegna símtals Eriks og Sabinu frá danska utanríkisráðuneytinu, sem sagði slíkt minnisblað ekki til. Erik vísar í símtal þeirra á milli í tölvupósti til Sabinu dagsettum 21. mars. „Eins og nefnt var í símtalinu tekur danska sendiráðið ekki afstöðu til þess hvaða kvikmyndir eru sýndar í Norræna húsinu eða á hvaða degi,“ sagði í tölvupóstinum. Engu að síður skrifaði Sabina sendiherranum og upplýsti hann um að sýningunni hefði verið aflýst vegna þess að ekki hefði gefist tími til að setja saman pallborð til að ræða kvikmyndina. Myndin hafi verið tekin úr sýningu vegna pólitískrar pressu Sólveig Ásta Sigurðardóttir, nýdoktor við Háskóla Íslands sem stundar rannsóknir á sviði nýlendustefnu, og Bryndís Björnsdóttir, doktorsnemi, sem stóðu að fyrirhugaðri sýningu á Hinu hvíta gulli Grænlands í Norræna húsinu, segjast fullvissar um að myndin hafi verið tekin úr sýningu vegna pólitískrar pressu. Þær segja Sabinu hafa haft samband við þær þremur dögum fyrir sýningu og upplýst um að sýningin gæti aðeins farið fram ef hún yrði sýnd af annarri stofnun og að sýningunni fylgdu pallborðsumræður með þátttakendum frá Danmörku og Grænlandi. Sólveig Ásta segir að þær hafi fundið þátttakendur en að Norræna húsið hafi sagt að fyrirvarinn væri of stuttur til að fara yfir og samþykkja þátttakendur. „Mér fannst eins og þeir hefðu þegar tekið ákvörðun,“ segir Bryndís við Journalisten. Hún og Sólveig lýsa áhyggjum af því að forstjóri Norræna hússins gefi eftir framkvæmdavald sitt og listrænt vald til stjórnmálaafla. „Ég á enn erfitt með að hugsa til þeirrar staðreyndar að bæði danski sendiherrann og framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar skyldu verja tíma sínum í að grípa inn í sýningu á heimildarmynd sem byggir á grænlenskum röddum,“ segir Sólveig Ásta í samtali við Journalisten. Karen Elleman, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, sagði við Journalisten að ekkert athugavert væri við samskipti hennar við Norræna húsið um sýninguna. „Norræna húsið í Reykjavík er menningarstofnun sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina og því er eðlilegt að við eigum í viðræðum um ýmsa viðburði,“ segir hún í skriflegu svari. Hið hvíta gull Grænlands var að lokum sýnd í Háskóla Íslands, án aðkomu Norræna hússins.
Go to News Site