Collector
Valur er Íslandsmeistari karla í handbolta | Collector
Valur er Íslandsmeistari karla í handbolta
Fréttastofa RÚV

Valur er Íslandsmeistari karla í handbolta

Valur og FH mættust í oddaleik um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta á Hlíðarenda í kvöld. Eftir jafnt og spennandi einvígi hélt háspennan áfram í kvöld. Stemmingin var góð á Hlíðarenda og vel heyrðist í stuðningsfólki beggja liða. Eftir jafnar upphafsmínútur komust Valsmenn fjórum mörkum yfir um miðjan fyrri hálfleik. Björgvin Páll Gústavsson varði vel í marki Vals og hann ásamt sterkri vörn lagði gruninn að því að Valsmenn náðu sex marka forystu. FH-ingar skoruðu hins vegar síðustu tvö mörk fyrri hálfleiksins og réttu sinn hlut þannig að fjórum mörkum munaði í hálfleik, 16-12. Hafnfirðingar bættu svo um betur, skoruðu fyrstu þrjú mörk seinni hálfleiksins og náðu að minnka muninn niður í eitt mark áður en fyrsta mark Valsara kom. Eftir að það var komið komust Valsmenn aftur þremur mörkum yfir. FH-ingar svöruðu þá um hæl og jöfnuðu leikinn um miðjan síðari hálfleik. Í kjölfarið var leikurinn jafn en Valur var þó skrefinu á undan og þegar fimm mínútur voru eftir voru heimamenn komnir með þriggja marka forystu. Áfram héldu Hafnfirðingar að svara og minnkuðu muninn niður í eitt mark, 26-25, þegar tvær mínútur voru eftir. Lokamínútan reyndist svo æsispennandi. Daníel Freyr Andrésson varði víti frá Arnóri Snæ Óskarssyni og FH-ingar fengu tækifæri á lokasókn til að jafna en sú sókn rann út í sandinn. 27-26 sigur Vals niðurstaðann og Íslandsmeistaratitillinn þeirra.

Go to News Site