Fréttastofa RÚV
Rapparinn Dóri DNA, Halldór Laxness Halldórsson, stígur á stokk næsta laugardag og lætur rímur flakka. Það hefur sá Laxness ekki gert í fjölda ára, án þess að vera í líki kjúklingasalans Colonel Sanders. Uppistandarinn, rithöfundurinn, vínsalinn og rapparinn er meðal þeirra sem taka þátt í fimmtu útgáfu af REW. sem hitar upp fyrir tónleika Yasiin Bey um helgina. Það eru þeir Benni B-Ruff og Kjartan Trauner sem standa fyrir REW. í samstarfi við Gísla Galdur. REW. vísar til rewind-takkans og er sviðsatriðið blanda af lifandi tónlist (rappi, söng og taktasmíði) og myndefni frá árdögum rappsins á Íslandi til dagsins í dag. Sennur á sviði Mosfellski rapparinn Dóri DNA var virkur árin eftir aldamót. Hann þótti hinn fínasti rímnasmiður og góður í að spýta út rímum á staðnum (e. freestyle). Þá var Dóri duglegur að „battla“, það er etja kappi í kveðskap og rappi án undirbúnings. Lagði hinn ungi Laxness sitt af mörkum til þessarar arfleifðar Íslendinga, sem á rætur að rekja allt til Egils Skallagrímssonar og raunar ása úr norrænni goðafræði ef út í það er farið. Það eru örfáir rapparar á Íslandi sem þora að battla mig Þetta rappaði DNA á laginu Í klúbbnum , með rappsveitinni Bæjarins bestu, árið 2002. Hér má sjá mosfellska rapparann keppa í Rímnastríði árið 2004. Það ár mætti hann félaga sínum úr Bæjarins bestu í úrslitum. Þverskurður af íslensku hip-hopi DNA er fjarri því að vera einn að sjá um upphitunina. Með REW. í þetta sinn verða af gamla skólanum rappararnir Dóri DNA og 7berg ásamt þeim Saint Pete, Daron Karl og Kzoba sem gera rapptónlist með búmm-bappí hljóði, sem minnir á 9. og 10. áratugina og árin eftir aldamót, þrátt fyrir að vera yngri að árum. Þá grípa einnig í míkrafóninn rapparar af nýja skólanum, þeir Alexander Jarl, Yung Nigo Drippin og Joey Christ sem hafa verið áberandi í senunni síðustu ár, ásamt því að söngkonurnar Ruby Francis og Emilía Hugrún stíga á svið. Það eru síðan þeir Benni B-Ruff og Gísli Galdur plötusnúðar og taktsmiðir sem þeyta skífum með öllu þessu tónlistarfólki. Þó eru enn ekki allir meðlimir syrpunnar upptaldir en þeir Class B og Byrkir B verða með, en þeir hafa tekið þátt í REW. frá upphafi. Báðir voru þeir meðlimir í rappsveitinni Forgotten Lores ásamt B-Ruff og fleirum. Rappararnir hafa þó aldrei lagt míkrafóninn á hilluna og eru enn í fullu fjöri. Class B, Baldvin Þór Magnússon, gaf til að mynda út plötuna B&KA árið 2023 sem Byrki B bregður fyrir á. Hér má síðan sjá þá Class B og Alexander Jarl saman á sviði í fjórðu útgáfu REW. í mars á þessu ári. Það var upphitun fyrir tónleika Mobb Deep í KR-heimilinu, en báðir rappararnir eru úr Vesturbænum. Dóri DNA, 7berg, Alexander Jarl og Yung Nigo Drippin, ásamt fleirum, taka þátt í fimmtu útgáfu sviðssyrpunnar REW. um helgina.
Go to News Site