Fréttastofa RÚV
Stundum listagallerí, stundum virki - og stundum leikhús. Krakkar í Vesturbæ Reykjavíkur standa vörð um hús sem þau hafa sjálf byggt, sem á að rífa vegna þess að það uppfyllir ekki öryggiskröfur. Fyrir fjórum árum hófu krakkar í vesturbæ Reykjavíkur framkvæmdir. Þau viðuðu að sér timbri og ýmsu efni sem þeim var gefið og byggðu kofa. Síðan þá hefur margsinnis verið byggt við hann og kofinn hefur verið vettvangur leikja og ýmissa uppátækja í hverfinu. En kannski ekki mikið lengur. Krakkar í Vesturbæ Reykjavíkur leita allra leiða til að koma í veg fyrir að „fjölnota hús“ sem þau hafa byggt og hannað síðustu ár verði rifið. Kofinn er ekki öryggisvottað leiktæki. Ekki öryggisvottað leiktæki „Við vorum að fá úrskurð frá Reykjavíkurborg um að við eigum að fjarlægja húsið vegna þess að þeim þykir stafa ógn af húsinu,“ segir Anna Kristín Blöndal Jóhannesdóttir foreldri í vesturbænum. Hvaða ógn stafar af húsinu? „Þau segja að þetta sé ekki öryggisvottað leiktæki.“ Í hópi þeirra sem smíða kofann og leika sér daglega í honum eru Freyja Louise Símonardóttir Flender 8 ára og Úlfur Jósep Gunnar Jarvstad 7 ára. „Bara leika. Smíða og mála og allskonar,“ svarar Freyja, spurð hvað þau geri helst í kofanum. Og Úlfur segir að þetta sé hús fyrir alla krakka í hverfinu, reyndar alla í hverfinu. „Þau eru hérna í frjálsum og opnum leik,“ segir Anna Kristín. „Bæði kalla þau þetta listagallerí, þetta er líka kallað virkið. Hérna eru börn alla daga, langt fram á dag að leika sér, byggja við, í hlutverkaleik, það eru settar á svið leiksýningar hérna, það eru tombólur hérna... og allt á þar milli.“ Svona 91 krakki leikur sér í kofanum Freyja og Úlfur segja að margir krakkar leiki sér í kofanum. „Mjög margir. Svona 91 krakki,“ segir Úlfur. Þau eru sammála um að það sé gott fyrir krakka að eiga kofa saman og Freyja segir að kofinn sé vinsælli í hverfinu en rólóvöllurinn. Anna Kristín segir að íbúunum hafi verið gefinn þriggja vikna frestur til að rífa kofann, að öðrum kosti verði gripið til aðgerða. „Þau segjast ætla að rífa húsið ef við flytjum það ekki eða tökum það ekki niður sjálf,“ segir hún, en krakkarnir leita ýmissa leiða til að koma í veg fyrir það og safna meðal annars undirskriftum. „Við erum að reyna að mótmæla og fá eins mörg nöfn og við getum,“ segir Freyja. „Ekki taka kofann“ Heldurðu að ef þið fáið mörg nöfn, þá verði hætt við að rífa kofann? „Já, örugglega. Kannski.“ Og skilaboðin frá krökkunum í Vesturbænum eru skýr: „Ekki taka kofann,“ segir Úlfur. „Hann er líka eiginlega orðinn hluti af fjölskyldunni. Finnst mér,“ segir Freyja.
Go to News Site