Collector
Ætla að endurbyggja hluta vegar um Mikladal | Collector
Ætla að endurbyggja hluta vegar um Mikladal
Fréttastofa RÚV

Ætla að endurbyggja hluta vegar um Mikladal

Fjallvegur um Mikladal milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar er ónýtur á köflum og ráðast á í endurbyggingu á hluta hans. Verið er að ganga frá útboði. Vonast er til að verkið verði boðið út um miðjan maí og framkvæmdum ljúki næsta sumar. „Vegurinn er orðinn gamall og úr sér genginn. Burðarlagið er ónýtt og það þarf að ráðast í frekari aðgerðir heldur en þessa plástra sem við höfum verið í,“ segir Pálmi Þór Sævarsson, svæðisstjóri Vestursvæðis hjá Vegagerðinni. Vegurinn liggur milli tveggja byggðakjarna og meðalumferð um hann er á fjórða hundrað bílar á dag. Fyrir um tveimur árum var hluti vegarins endurbyggður og nú á að endurbyggja tæplega fjögurra kílómetra kafla til viðbótar í núverandi vegstæði. Dugar í 30-40 ár „Það er ekki verið að byggja algjörlega nýjan veg en það er verið að koma honum í nútímastandard eins og fyrri áfanga,“ segir Pálmi. Hann bætir við að vegurinn í heild sinni ætti að vera orðinn nokkuð góður að framkvæmdum loknum. Áætlaður kostnaður er 400-500 milljónir. „Þetta er alveg heljarinnar verkefni,“ segir Pálmi sem segir úrbæturnar eiga að geta staðið næstu 30-40 árin. Göng um Mikladal og Hálfdán eru í fjórða sæti í forgangsröð jarðganga í samgönguáætlun. „Við erum ekki að fara í að hanna nýjan veg og uppfæra allar veghönnunarreglur. Það er miklu stærra mál. Þetta ætti að duga fram að göngum, sama hvenær þau koma,“ segir Pálmi.

Go to News Site