Fréttastofa RÚV
Valur og FH mættust í oddaleik um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta á Hlíðarenda í kvöld. Eftir jafnt og spennandi einvígi hélt háspennan áfram í kvöld. Stemmingin var góð á Hlíðarenda og vel heyrðist í stuðningsfólki beggja liða. Eftir jafnar upphafsmínútur komust Valsmenn fjórum mörkum yfir um miðjan fyrri hálfleik. Björgvin Páll Gústavsson varði vel í marki Vals og hann ásamt sterkri vörn lagði gruninn að því að Valsmenn náðu sex marka forystu. FH-ingar skoruðu hins vegar síðustu tvö mörk fyrri hálfleiksins og réttu sinn hlut þannig að fjórum mörkum munaði í hálfleik, 16-12. Hafnfirðingar bættu svo um betur, skoruðu fyrstu þrjú mörk seinni hálfleiksins og náðu að minnka muninn niður í eitt mark áður en fyrsta mark Valsara kom. Eftir að það var komið komust Valsmenn aftur þremur mörkum yfir. FH-ingar svöruðu þá um hæl og jöfnuðu leikinn um miðjan síðari hálfleik. Í kjölfarið var leikurinn jafn en Valur var þó skrefinu á undan og þegar fimm mínútur voru eftir voru heimamenn komnir með þriggja marka forystu. Áfram héldu Hafnfirðingar að svara og minnkuðu muninn niður í eitt mark, 26-25, þegar tvær mínútur voru eftir. Lokamínútan reyndist svo æsispennandi. Daníel Freyr Andrésson varði víti frá Arnóri Snæ Óskarssyni og FH-ingar fengu tækifæri á lokasókn til að jafna en sú sókn rann út í sandinn. 27-26 sigur Vals niðurstaðann og Íslandsmeistaratitillinn þeirra. „Ég held við séum bara verðskuldaðir meistarar“ „Ég er bara orðlaus, ég veit ekki hvað ég á að segja. Þetta er bara besta tilfinning í heimi,“ sagði hinn 18 ára Gunnar Róbertsson eftir að Íslandsmeistaratitillinn var kominn í hús. Valur er Íslandsmeistari karla í handbolta eftir 27-26 sigur á FH í oddaleik liðanna á Hlíðarenda í kvöld. Þetta er 25. Íslandsmeistaratitill félagsins í karlaflokki. Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Valsmanna, viðurkenndi að leikurinn hefði verið hrikalega erfiður og að úrslitaeinvígið í heild sinni hefði verið erfitt. „Annað liðið varð að tapa og mér fannst bara mikill karakter og mikil orka í mínum mönnum í dag...ég held við séum bara verðskuldaðir meistarar,“ sagði Ágúst meðal annars. Valur er Íslandsmeistari karla í handbolta eftir 27-26 sigur á FH í oddaleik liðanna á Hlíðarenda í kvöld. Þetta er 25. Íslandsmeistaratitill félagsins í karlaflokki. Þetta var fjórði Íslandsmeistaratitill Ágústar í röð en hann varð Íslandsmeistari með kvennaliði Vals þrjú ár í röð áður en hann tók við karlaliðinu fyrir þetta tímabil. Hann segir alltaf jafn skemmtilegt að verða meistari. Ágúst Birgisson, fyrirliði FH-inga, telur það líklegt að hann hafi í kvöld spilað sinn síðasta leik á ferlinum, þó svo það hafi hann líka sagt eftir síðasta tímabil. Hann var að vonum svekktur með tapið en þó afar stoltur af liðinu. Valur er Íslandsmeistari karla í handbolta eftir 27-26 sigur á FH í oddaleik liðanna á Hlíðarenda í kvöld. Þetta er 25. Íslandsmeistaratitill félagsins í karlaflokki.
Go to News Site