Fréttastofa RÚV
Síðasti dagur norðanáttarinnar sem hefur blásið um landið er upp runninn því á morgun taka við vestlægar eða breytilegar áttir. Hiti verður frá því um frostmark um landið norðaustanvert að sjö stigum þar sem hlýjast verður í dag. Það blæs nokkuð á Suðaustur- og Austurlandi en annars staðar verður hægari vindur. Áfram má vænta stöku élja norðaustantil fram eftir degi og vestast á landinu gætu orðið skúrir eða él. Annars verður lengst af þurrt. Veðurspáin er svohljóðandi: Norðan átta til fimmtán metrar á sekúndu á Suðaustur- og Austurlandi í dag, annars hægari vindur. Skúrir eða él vestast á landinu, og stöku él norðaustantil fram eftir degi, en lengst af þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 1 til 8 stig að deginum, en í kringum frostmark um landið norðaustanvert. Vestlæg eða breytileg átt 3-10 á morgun. Súld eða dálítil rigning á Suðvestur- og Vesturlandi, annars þurrt að mestu. Hlýnar heldur.
Go to News Site