Collector
Ekkert fararsnið á Starmer en Farage kampakátur | Collector
Ekkert fararsnið á Starmer en Farage kampakátur
Fréttastofa RÚV

Ekkert fararsnið á Starmer en Farage kampakátur

„Þetta eru slæm úrslit, mjög slæm, og það er ekkert hægt að fegra það,“ sagði Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, þegar hann brást við fyrstu niðurstöðum sveitarstjórnarkosninga sem fram fóru í landinu í gær. Flokkur Starmers, Verkamannaflokkurinn, tapaði miklu fylgi og hefur misst um 250 sæti í sveitarstjórnum miðað við það sem nú er búið að telja. Á sama tíma stórjókst fylgi Reform, flokks Nigels Farage, sem hefur bætt við sig yfir 360 sætum. Starmer hefur lengi sætt gagnrýni vegna starfa sinna í ríkisstjórn og staða hans þykir hafa veikst enn með slæmri útkomu flokksins. Það virtist þó ekkert fararsnið á forsætisráðherranum þegar hann hélt ávarp í morgun. Starmer sagði að úrslitin væru sársaukafull fyrir Verkamannaflokkinn og að hann axlaði ábyrgð á því. Hann sagði að næstu skref yrðu að vera þau að meta skilaboð kjósenda og bregðast við þeim. Þegar blaðamenn spurðu hann hreint út sagðist Starmer ekki ætla að láta af embætti og steypa þjóðinni í óreiðu. Nigel Farage, leiðtogi Reform - Umbótaflokksins, var öllu vígreifari þegar hann ávarpaði fjölmiðla í morgun. Hann sagði að úrslit kosninganna væru til marks um sögulega breytingu á stjórnmálalandslagi Bretlands. Farage sagði að þema kosninganna væri það að flokkur hans væri að ryðja Verkamannaflokknum til hliðar í öllum helstu vígjum hans. Hann sagði að flokkurinn hefði þegar sýnt að hann gæti unnið kjördæmi þar sem Íhaldsmenn hefðu löngum verið sterkastir. Nú ynni hann í sveitarfélögum þar sem Verkamannaflokkurinn var sterkastur.

Go to News Site