Collector
Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85% | Collector
Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85%
Fréttastofa RÚV

Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85%

Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hafa víða hækkað verulega á kjörtímabilinu 2022–2026, eða um allt að 85%, að því er segir í nýju yfirliti ASÍ og BSRB um þróun leikskólaþjónustu síðastliðin fjögur ár. Í því segir að víða hafi opnunartími verið styttur, lokunardögum fjölgað auk þess sem gjaldskrár hafi orðið flóknari og kostnaður við fulla vistun hækkað. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir að umfangsmiklar breytingar hafi verið gerðar á leikskólakerfinu á kjörtímabilinu án pólitískrar umræðu. „Við sjáum mjög svo skýran rauðan þráð hjá öllum sveitarfélögum að það er verið að skerða þjónustuna og hækka gjöldin.“ Hún segir að margt félagsfólk hafi neyðst til að stytta vistunartíma fyrir börn sín, lækka starfshlutfall eða finna aðrar leiðir sem hafi áhrif á tekjur þeirra. „Það eru fjárhagslegar refsingar fyrir þau sem þurfa á fullri vistun að halda. Það eru einna helst einstæðir foreldrar, tekjulágir eða þau sem hafa ekki mikið bakland,“ segir hún. Í samantektinni segir að afsláttarkerfi hafi breyst á kjörtímabilinu. Í sumum sveitarfélögum hafi afslættir fyrir tiltekna hópa, svo sem námsmenn, einstæða foreldra og fólk með örorku, verið felldir niður. Í staðinn hafi verið tekin upp tekjutengd gjöld. Það feli í sér að stór hluti foreldra greiði hærri gjöld en áður, því víða séu tekjumörk lág. Þá segir að víða hafi gjöld lækkað eða verið felld niður fyrir skerta vistun. „Fullvinnandi foreldrar niðurgreiða leikskólagjöld þeirra sem geta nýtt sér skerta vistun,“ segir í fréttatilkynningu.

Go to News Site