Fréttastofa RÚV
David Attenborough, náttúruunnandi og einn þekktasti sjónvarpsmaður heims, er 100 ára í dag. Í ávarpi segist hann djúpt snortinn yfir öllum þeim fjölda afmæliskveðja sem honum hafa borist. Margir telja Attenborough einn áhrifamesta mann samtíðarinnar. Hann heillaðist ungur af undrum náttúrunnar og á að baki um 70 ára feril í sjónvarpi. Þekktastur er hann fyrir náttúrulífsþættina Life on Earth eða Lífið á jörðinni sem fyrst voru sendir út 1979. Attenborough þekkir náttúruna betur en flestir og hefur á löngum ferli séð breytingar verða á henni. Í seinni tíð hefur hann orðið aðgerðasinni til verndar náttúrunni. Í dag heldur hann upp á aldarafmælið. „Ég hafði séð fyrir mér að fagna aldarafmælinu í rólegheitum en svo virðist sem ýmsir aðrir hafi aðrar hugmyndir,“ segir Attenborough í ávarpi sem Breska ríkisútvarpið birti. „Ég er djúpt snortinn yfir öllum þeim fjölda afmæliskveðja sem mér hafa borist; frá skólabörnum, fjölda einstaklinga og fjölskyldum á öllum aldri.“ Ýmsir viðburðir verða í heimalandi hans, Bretlandi, í dag í tilefni aldarafmælisins. Í kvöld verða tónleikar í Royal Albert Hall þar sem íslenska hljómsveitin Sigur Rós kemur fram. Lag sveitarinnar, Hoppípolla, var notað í kynningu á fyrstu tveimur þáttaröðunum af Planet Earth, sem sýndar voru á RÚV undir heitinu Jörðin. Eins verða viðburðir á söfnum í Bretlandi í dag, náttúrugöngur hafa verið skipulagðar og gróðursetning trjáa.
Go to News Site