Collector
Samkomulag við Landsnet í höfn og Blöndulína 3 fer af stað | Collector
Samkomulag við Landsnet í höfn og Blöndulína 3 fer af stað
Fréttastofa RÚV

Samkomulag við Landsnet í höfn og Blöndulína 3 fer af stað

Bæjarstjórnin á Akureyri var samstíga í ákvörðun sinni um að samþykkja samkomulag við Landsnet um lagningu Blöndulínu 3. Raflínan á að liggja frá Rangárvöllum, um 600 metra fyrir ofan núverandi byggð í efstu hverfum Þorpsins og út fyrir bæinn inn í Hörgársveit. Mikill þrýstingur var á bæinn frá íbúum að koma þessari línu í jarðstreng. Þrátt fyrir að það verði ekki gert fyrst um sinn segir í samkomulaginu að um leið og tæknin leyfi og öll kerfi séu samtengd verði hægt að leggja Blöndulínu 3 í jarðstreng innan bæjarmarka Akureyrar, eða í kringum 2030. „Akureyrarbær er í algjörum forgangi hjá Landsneti að það verði sett jarðstrengur í gegnum íbúðasvæði eða þar sem er gert ráð fyrir honum þegar möguleiki er á. Ég held að við höfum komist mjög langt með okkar kröfur og ég held að það sýni sig best á því að bæjarstjórnin var öll sammála,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri. Íbúar hafa tekið Blöndulínu 3 misjafnlega en telur Ásthildur að vandað hafi verið til verka og það skili sér í farsælli niðurstöðu fyrir íbúa. „Eðlilega eru skiptar skoðanir og það er alltaf þannig og sérstaklega í svona málum eins og þessu. við höfum bara reynt að vanda okkur mjög mikið og koma til móts við íbúa eins og möguleiki er á.“

Go to News Site