Fréttastofa RÚV
Skipulagsráð á Akureyri gat ekki orðið við beiðni Heilsurverndar um lóð við Þingvallastræti fyrir fyrirhugaða uppbyggingu undir heilbrigðisþjónustu við aldraða í tímabundinni dvöl og endurhæfingu. Mikil þörf er á slíku rými á Akureyri sökum bágborins ástands á hjúkrunarheimilinu Hlíð, sem og Kristnesi. Mikil mygla hefur greinst á báðum stöðum, sem heftir starfsemina. „Það er gríðarleg þörf og við viljum auðvitað allt gera til þess að þetta gangi hratt og fljótt fyrir sig og aðstaðan batni. Húsnæðið uppá Hlíð er náttúrulega illa farið skulum við segja og svo bætir ekki úr skák þegar Kristnes er komið í þessa stöðu,“ sagði Halla Björk Reynisdóttir. Ástæðan fyrir því að Akureyrarbær gat ekki orðið við umsókn Heilsuverndar var tvíþætt. Annars vegar var ekki búið að auglýsa þessa lóð og skipulagsráð hefur ekki heimild til að úthluta lóðum án auglýsingar og einnig hafi byggingarmagnið sem Heilsuvernd vildi koma fyrir á lóðinni verið of mikið miðað við stærð lóðarinnar. „Ég segi bara, samtalið er í fullum gangi. Þessi lóð var aðeins of lítil fyrir það byggingarmagn sem Heilsuvernd var að sækjast eftir. Við munum taka málið aftur fyrir í skipulagsráði á miðvikudaginn. Það eru bara næstu skref í málinu,“ sagði Halla
Go to News Site