Fréttastofa RÚV
Dorrit Moussaieff óskar leiðtoga breska Umbótaflokksins, Nigel Farage, til hamingju með árangurinn í sveitarstjórnarkosningum sem haldnar voru í gær. Þetta gerði forsetafrúin fyrrverandi í færslu á Instagram í dag. Sveitarstjórnarkosningar voru í Bretlandi í gær og samkvæmt þeim niðurstöðum sem komnar eru hefur Verkamannaflokkur forsætisráðherrans Keirs Starmer tapað miklu fylgi. Umbótaflokkur Farage hefur hins vegar stóraukið fylgi sitt. Talning stendur enn yfir en gert er ráð fyrir því að lokatölur liggi fyrir á morgun. Undir mynd af sér og Farage spyr Dorrit hvort nú sé hægt að koma til Bretlands aftur. Þá segir hún að Farage verði næsti forsætisráðherra landsins og að hann muni gera Bretland „frábært á ný“. Setningin, sem er rituð á ensku, er greinileg vísun í slagorðið Make America Great Again eða MAGA sem gjarnan er orðað við Donald Trump Bandaríkjaforseta. Farage hefur einnig notað þetta orðalag sjálfur. Umbótaflokkurinn er popúlískur hægri flokkur og eitt helsta baráttumál hans er að stemma stigu við fjölgun innflytjenda. Í athugasemd undir færslunni segir Dorrit að hún vilji að „allir glæpamennirnir“ yfirgefi Bretland og nefnir í því samhengi að hún sé vör um sig þegar hún sé á gangi á götum úti. Hún vísar til þess þegar þjófur réðst á hana í Lundúnum síðla árs í fyrra með þeim afleiðingum að tönn í henni brotnaði. Hún tekur þó fram að innflytjendur, aðrir en glæpamenn, séu velkomnir.
Go to News Site