Collector
Knappur tími til að flytja fólk úr Hondiusi vegna veðurs | Collector
Knappur tími til að flytja fólk úr Hondiusi vegna veðurs
Fréttastofa RÚV

Knappur tími til að flytja fólk úr Hondiusi vegna veðurs

Skemmtiferðaskipið Hondius, þar sem hantaveira hefur komið upp, er á leið til Tenerife og er búist við því þangað á sunnudagsmorgun. Veðurspáin er þannig að skipið þarf að leggja af stað frá Tenerife á mánudag. Því þarf að hafa hraðar hendur við að flytja 150 manns úr skipinu. Talsmaður veðurstofu Kanaríeyja sagði við fjölmiðla í dag að eina tækifærið til að flytja fólk úr skipinu verði frá hádegi á sunnudag og áður en veðrið versnar á mánudag. Verði fólkið ekki flutt í land á þessum tíma gefist mögulega ekki tækifæri næst á Tenerife fyrr en í lok mánaðarins. Skipið hefur verið í kastljósi fjölmiðla um allan heim síðustu daga. Þrír létust um borð eftir að skipið lagði úr höfn í Argentínu í apríl. Þrír voru fluttir frá borði undan Grænhöfðaeyjum á dögunum. Enn eru um 150 manns um borð í skipinu, farþegar og áhöfn. Búist er við skipinu til Granadilla á Tenerife á sunnudagsmorgun. Stjórnvöld á Spáni heimiluðu skipinu að koma, þrátt fyrir óánægju stjórnvalda á Kanaríeyjum. Skipið kemur ekki í höfn í Granadilla heldur verða farþegar fluttir á brott á minni bátum. Þaðan verða þeir fluttir með rútu á flugvöll og fluttir úr landi. Stjórnvöld í Bandaríkjunum tilkynntu í dag að flugferð hafi verið skipulögð frá Tenerife fyrir þá Bandaríkjamenn sem eru um borð. Fólkið um borð er af 23 þjóðernum.

Go to News Site