Fréttastofa RÚV
Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga ætla á þessu ári að leggja áherslu á eftirlit með öryggi barna inni á líkamsræktarstöðvum. Tilefnið er erindi sem Salvör Nordal, umboðsmaður barna, sendi heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga þar sem hún vakti athygli á því að tryggja yrði öryggi barna á líkamsræktarstöðvum. Greindi umboðsmaður barna frá því að hann hefði fengið ábendingu þess efnis að ungbarn hefði verið flutt á sjúkrahús eftir að hafa fengið lóð í kviðinn. Vísaði hún sérstaklega til námskeiða sem ætluð eru nýbökuðum foreldrum, svokallaðra mömmutíma, þar sem gert er ráð fyrir því að barn fylgi foreldri inn í tímann. Lára Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Austurlands, segir erindið litið mjög alvarlegum augum enda varði það öryggi barna. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafi í gegnum samstarfshóp hollustuhátta ákveðið að kortleggja stöðuna og leggja mat á hvort þörf sé á að grípa til aðgerða. „Eitt slys er nóg“ Lára segir að ákveðið hafi verið, innan samstarfshóps heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga, að semja öryggisspurningar fyrir reglubundið eftirlit með líkamsræktarstöðvum á árinu. Það ferli sé á byrjunarreit. „Við ákváðum að það þyrfti að huga sérstaklega að öryggismálum barna í reglubundnu eftirliti á líkamsræktarstöðvum og erum í rauninni að byrja á því núna að kortleggja stöðuna og skoða hvaða viðmið þurfa að vera til staðar til þess að tryggja það að öryggi barna sé alltaf í forgangi,“ segir Lára. Heilbrigðiseftirlit allra sveitarfélaga eiga fulltrúa í samstarfshópnum. Þegar álíka mál koma upp er unnið að þeim innan hollustuháttahópsins. Teljið þið að öryggi barna í einhverjum líkamsræktarstöðvum geti verið ábótavant? „Það er góð spurning. Við vitum ekki til þess að það hafi verið mörg slys á börnum inni á líkamsræktarstöðvum, en eitt slys er nóg til þess að þetta sé tekið til alvarlegrar skoðunar.“ Þarf að skoða fyrirkomulag mömmuleikfiminnar Lára segir tilefni til að velta því fyrir sér hve gáfulegt fyrirkomulag líkamsræktarnámskeiða sem ætluð eru nýbökuðum foreldrum sé. „Við vitum það líka að margar líkamsræktarstöðvar eru hættar að bjóða upp á þessar barnagæslur sem oft tíðkuðust, sem er að vissu leyti jákvætt út frá öryggi barna. En þessi mömmuleikfimi virðist vera nokkuð vinsæl og er auðvitað, í grunninn, ágætis hugmynd. En þá þarf að huga rosalega vel að öryggismálum barna og það er það sem við viljum skoða nánar.“ Málið sé enn á byrjunarreit. „Við erum að byrja að skoða þetta hjá okkur og ætlum að leggja áherslu á þetta í eftirliti á árinu. Í rauninni er það svolítið niðurstaðan úr því eftirliti sem mótar kannski vinnuna áfram. Hvað þurfi að gera? Hvort þessu sé ábótavant, hvort þetta hafi bara verið mjög óheppilegt slys eða hvort það þurfti að grípa til aðgerða. Það þarf að koma í ljós,“ segir Lára.
Go to News Site