Collector
Á þriðja hundrað manns syngja á heiðurstónleikum á Selfossi | Collector
Á þriðja hundrað manns syngja á heiðurstónleikum á Selfossi
Fréttastofa RÚV

Á þriðja hundrað manns syngja á heiðurstónleikum á Selfossi

Um 250 tónlistarmenn á Suðurlandi koma fram á tónleikum í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi um helgina. Með tónleikunum er verið að heiðra Björgvin Þ. Valdimarsson, tónskáld og kórstjóra, sem varð nýlega 70 ára. Þekktasta lag hans er „Undir dalanna sól”. Æfingar hafa staðið yfir af fullum krafti síðustu vikur og allt gengið samkvæmt áætlun. Karlakór Selfoss, Karlakór Rangæinga, sönghópurinn Öðlingar og kirkjukórar Selfosskirkju, Breiðabólsstaðarprestakalls og Odda- og Þykkvabæjarkirkju koma fram, ásamt einsöngvurunum Alexander Jarli Þorsteinssyni, Dísellu Lárusdóttur, Gunnlaugi Bjarnasyni og Einari Þór Guðmundssyni, að ógleymdri Sinfóníuhljómsveit Suðurlands þar sem Guðmundur Óli Gunnarsson er hljómsveitarstjóri. Tónleikarnir fara fram á laugardaginn í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi og eru afmælistónleikar Björgvins Þ. Valdimarssonar, tónskálds og skólastjóra, sem varð nýlega 70 ára og verða verk hans flutt á tónleikunum. En hver er Björgvin Þ. Valdimarsson? „Það er einhver maður frá Selfossi sem hefur verið ákaflega iðinn við að semja sönglög. Svo er það náttúrlega þessi frábæra hljómsveit sem við höfum hérna, Sinfóníuhljómsveit Suðurlands, sem er klassísk sinfóníuhljómsveit sem við settum í gang hérna fyrir einum fimm árum síðan,” segir Guðmundur Óli Gunnarsson, hljómsveitarstjóri og stjórnandi sveitarinnar. En hvert er þekktasta lag eða lög Björgvins fyrir þá sem eru ekki alveg með þetta á hreinu? „Ætli „Undir Dalanna sól“ sé ekki þekktasta. Svo er það „Vorsól”, það er líka mjög þekkt og „Kveðjan heiman” að fleiri lögum, sem Álftagerðisbræður og fleiri hafa verið að syngja,” segir Björgvin og bætir við. „Við erum að gefa mikið til samfélagsins með tónleikunum. Fólkið sem kemur fram er búið að leggja alveg gríðarlega mikið á sig og það er mikið kóralíf hér á Suðurlandi. Og það er náttúrulega frábært hjá þessu fólki að fá þetta tækifæri, að fá að syngja með sinfóníuhljómsveit.”

Go to News Site