Fréttastofa RÚV
„Það er mikið og gott eftirlit með öllum innkaupum borgarinnar og það sama á við um borgarstjóra þar og alla aðra,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri. Starfsfólk Reykjavíkurborgar gerði ítrekað athugasemdir við notkun borgarstjóra á innkaupakorti sem hún hefur til umráða í störfum sínum. Hún hefur endurgreitt nokkra reikninga, suma eftir fyrirspurnir fjölmiðla. Heiða segist hafa kallað eftir nýjum kvittunum fyrir ákveðna reikninga í nokkurn tíma. „Ég auðvitað skila inn til skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, þegar ég kaupi þá skila ég kvittunum þangað, sem þau fara yfir og tryggja að allar heimildir séu og senda áfram til fjármálasviðs,“ segir hún. Þegar fylgiskjöl eða upplýsingar á kvittanir vanti sé skýrt að starfsmaður þurfi að greiða til baka. „Og það gildir bara um borgarstjóra eins og alla aðra.“ Orðið athugasemd gildishlaðið Gerðar hafa verið athugasemdir við meirihluta úttekta á kortinu, en samkvæmt skriflegu svari frá Reykjavíkurborg gerði starfsfólk á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara tuttugu og þrjár skriflegar athugasemdir við notkun Heiðu Bjargar á kortinu, auk munnlegra athugasemda. Þá gerði bókhaldsskrifstofa fjármála- og áhættustýringarsviðs einnig athugasemdir við óskýrar upplýsingar eða skort á kvittunum. Spurð út í þetta segir Heiða athugasemd vera gildishlaðið orð. Hún segir það hlutverk starfsmanna að spyrja um úttektir. „Mér finnst mikilvægt að það séu um þrír aðilar sem fara yfir alla reikninga og það er eðlilegt að þeir spyrji, og það hafa þeir gert og fylgt því eftir. Mér finnst bara mjög eðlilegt að fólki finnist þetta óþægilegt og þykir bara vænt um að fá að útskýra hér að það er á engan hátt óeðlilegt eða vafi um það að borgarstjóri hafi heimild til þess að taka á móti gestum,“ segir borgarstjóri. „Við erum að reyna að reka borgina með hagkvæmum hætti. Það er ódýrara að hitta fólk annars staðar heldur en að kalla út fjölda starfsmanna. Þannig að ég vona að fólk treysti því að það sé vel farið með fé.“ Gott eftirlit með útgjöldum Upphæðin er kannski ekki svo há en þetta er almannafé. Finnst þér þessar skýringar þínar nægilega trúverðugar? Er þetta ekki bara dæmi um slæma stjórnsýslu? „Ég held að þetta sé svolítið gott dæmi um góða stjórnsýslu, gott eftirlit með útgjöldum,“ segir Heiða. „Ég hef auðvitað bara fylgt þeim leiðbeiningum og athugasemdum sem ég hef fengið og reynt að bæta úr því.“ Heiða segist ekki vita til þess að hún eigi eftir að endurgreiða fleiri reikninga. „Okkur vantar enn þá eina kvittun. Það er erfitt að fá betri kvittanir með kennitölu frá útlöndum,“ segir hún og bætir við að enn eigi eftir að gera upp ferð til Grænlands. Viðtalið við Heiðu Björgu Hilmisdóttur má sjá í spilaranum hér að neðan. Borgarstjóri fagnar athugasemdum við notkun hennar á innkaupakorti borgarinnar og segir þær gott dæmi um góða stjórnsýslu og gott eftirlit með útgjöldum.
Go to News Site