Collector
„Nokkrir Bakkakotsmannanna hafa reynt að stytta sér aldur“ | Collector
„Nokkrir Bakkakotsmannanna hafa reynt að stytta sér aldur“
Fréttastofa RÚV

„Nokkrir Bakkakotsmannanna hafa reynt að stytta sér aldur“

Drög að frumvarpi um rannsóknarnefnd um Bakkakot og fleiri vistheimili eru á lokametrunum og voru kynnt lögmanninum í Stjórnarráðinu í morgun. Bjarki Heiðar Bjarnason, lögmaður Bakkakotsmanna, líst ágætlega á frumvarpsdrögin en sá strax nokkuð sem þyrfti að laga. Þurfa aðgang að lögregluskýrslum og áverkavottorðum „Það þurfa að vera þarna mjög skýrar heimildir að okkar mati. Til dæmis að það megi nýta lögregluskýrslur og að nefndin geti kallað eftir lögreglugögnum og ýmsum heilsufarslegum upplýsingum, áverkavottorðum og þess háttar sem eru þannig úr garði gerð að þau geta upplýst um það sem gerðist og það tjón sem umbjóðendur okkar hafa orðið fyrir.“ Bjarki er bundinn trúnaði um það sem er í frumvarpsdrögunum en til stendur að leggja frumvarpið fram á Alþingi á yfirstandandi þingi, til þess að rannsóknarnefndin geti hafið störf sem allra fyrst. Verið sé að meta þörf mannanna fyrir sálfræðiþjónustu. Þeir eru um 30 talsins og hafi mikla þörf fyrir aðstoð. Tilfinningaflóðið og áföllin að opnast Hvernig líður mönnunum með þessa vinnu? „Hún hefur í mörgum tilvikum verið mjög erfið. Þetta er misjafnt eftir hverjum og einum. Hjá sumum hefur þetta verið mjög erfitt og nokkrir þeirra hafa reynt að fremja sjálfsmorð. Þetta er bara virkilega erfitt og teymið hefur reynst þeim lífsnauðsynlegt og það hefur verið haldið utan um þá drengi sérstaklega. Það eru margir að opna sig í fyrsta skiptið við einhvern um það sem gerðist þarna og þetta er bara mjög mikilvæg og erfið vinna,“ segir Bjarki. Umfjöllunin um málið og fortíð þeirra hafi verið þeim erfið. Sumum hafi ekki verið trúað alla ævi. „Kannski lýstu þeir ofbeldi þegar þeir voru börn og þeim var sagt að þeir væru að ljúga og núna er þetta að koma fram og þeim er allt í einu trúað. Nú kemur í ljós að þetta var satt allan tímann. Tilfinningaflóðið og áföllin eru að opnast og sárin. Þetta hefur verið sumum svo erfitt að menn hafa reynt að fyrirfara sér,“ segir Bjarki. Nokkrir mannanna sem voru vistaðir sem börn í Bakkakoti hafa reynt sjálfsvíg á síðustu mánuðum. Uppgjör þeirra við fortíðina er mjög erfitt, segir lögmaður þeirra.

Go to News Site