Fréttastofa RÚV
Stjarnan-KR Stjarnan fór mun betur af stað á heimavelli sínum og komst í 2-0 með tveimur mörkum undir lok fyrri hálfleiks. KR svaraði hins vegar í seinni hálfleik og skoraði þrjú mörk og vann. 1-0 Örvar Eggertsson 44' 2-0 Benedikt Warén 45' 2-1 Aron Sigurðarson 60' 2-2 Luke Rae 87' 2-3 Ástbjörn Þórðarson 87' Fram-Valur Reykjavíkurslagurinn í Úlfarsárdal fór hressilega af stað og eftir korter voru komin þrjú mörk. Sigurmarkið kom svo á lokasekúndu uppbótartímans og Fram hirti öll stigin. 0-1 Tryggvi Hrafn Haraldsson 2' 1-1 Kennie Chopart 10' 1-2 Adam Ægir Pálsson 14' 2-2 Simon Tibbing 45' 3-2 Jakob Byström 90+4' Breiðablik-FH Sveiflur í báðar áttir í Kópavogi. FH-ingar, sem hafa verið í basli, komust í 2-0 og misstu það niður. Komust aftur yfir en misstu það aftur. Jafntefli var niðurstaðan. 1-0 Ásgeir Helgi Orrason 25' 2-0 Kristófer Ingi Kristinsson 45' 2-1 Gils Gíslason 49' 2-2 Kjartan Kári Halldórsson 64' 2-3 Gils Gíslason 69' 3-3 Höskuldur Gunnlaugsson 78' ÍA-Keflavík Einstefna á Skaganum. Keflavík skoraði fyrstu þrjú mörkin og ÍA náði sér svo í sárabótarmark. Sem er samt sennilega lítil sárabót. 0-1 Ásgeir Páll Magnússon 30' 0-2 Axel Ingi Jóhannesson 64' 0-3 Stefán Alexander Ljubicic 71' 1-3 Markús Páll Ellertsson 78' Fyrr í dag vann Víkingur svo Þór mjög örugglega eins og lesa má um hér að neðan.
Go to News Site