Collector
Njarðvík vann fyrsta leikinn gegn Haukum | Collector
Njarðvík vann fyrsta leikinn gegn Haukum
Fréttastofa RÚV

Njarðvík vann fyrsta leikinn gegn Haukum

Úrslitaeinvígi Bónusdeildar kvenna í körfubolta hófst í kvöld. Haukar tóku á móti Njarðvík á Ásvöllum og höfðu gestirnir betur. Njarðvík skoraði fyrstu sex stig leiksins og gaf þar tóninn. Munurinn var svo 19 stig í leikhléi, 52-33, en Haukar minnkuðu muninn í eitt stig í þriðja leikhlutanum. Njarðvík náði þá aftur undirtökunum og vann með 12 stiga mun, 92-80. Liðin mætast næst í Njarðvík á mánudag og svo er þriðji leikurinn á Ásvöllum á fimmtudaginn kemur. Brittany DinkinsRÚV / Mummi Lú

Go to News Site