Collector
Dalamenn velja á milli fimm hundruð nafna í kjörklefanum | Collector
Dalamenn velja á milli fimm hundruð nafna í kjörklefanum
Fréttastofa RÚV

Dalamenn velja á milli fimm hundruð nafna í kjörklefanum

Þegar Dalamenn ganga að kjörborðinu bíður þeirra að velja milli fimm hundruð og þrjátíu nafna. Fjórir frambjóðendur gáfu kost á sér á framboðsfundi í gærkvöld. Það var persónulegur og einlægur bragur á framboðsfundinum í Dalabúð, enda skipta þar persónurnar höfuðmáli. Í sjö sveitarfélögum á landinu barst enginn framboðslisti fyrir sveitarstjórnarkosningar svo þar fara fram óbundnar kosningar. Hvergi eru fleiri á landinu í framboði en í Dalabyggð. Þar eru 534 á kjörskrá. „Það eru allir kjörgengir sem eru heilir og hraustir og undir 65 ára. Að vísu er hægt að skorast undan. Þeir sem hafa verið í sveitarstjórn geta skorast undan jafn mörg kjörtímabil og þeir hafa setið í sveitarstjórn. Þannig það eru ansi mörg nöfn sem koma til greina,“ segir Bergþóra María Jónsdóttir, kjörnefndarmaður í Dalabyggð. Skúli er meðal þeirra fjögurra sem biðst undan því að sitja áfram í sveitarstjórn, sjálfur hefði hann kosið að sjá listakosningu. „Þá hefur maður meira bakland, veit þá hvert maður á að leita ef mann vantar einhvern svona stuðning, eða ég tel að það sé betra,“ segir Skúli Hreinn Guðbjörnsson, sitjandi sveitarstjórnarfulltrúi. Fjórir í bjóða sig fram en sjö þarf í sveitarstjórn Fjórir gáfu kost á sér í gær. En það þarf sjö í sveitarstjórn og sjö til viðbótar sem varamenn. Þá gæti farið svo að einhverjir dragi stutta stráið - og þurfi að sitja í sveitarstjórn án þess að hafa á því minnsta áhuga. „Ég held það sé bara ekkert mjög gott, hvorki fyrir þann sem lendir í því eða bara samfélagið. Sérstaklega ef það er einhver sem hefur virkilega engn áhuga á að starfa,“ segir Skúli. Hann segir að eins geti samhljóminn skort hjá sveitarstjórn þar sem fólk hafi ekki stillt saman strengi fyrir kosningar. Bergþóra segir kjörstjórn eiga mikið verk fyrir höndum. Hver einasti kjósandi þarf að skrifa nöfn sinna frambjóðenda á seðilinn. Það getur verið eitt nafn, eða fjórtán ef kjósandi vill velja í sæti aðal- og varamanna. Þetta kalli á sex kjörklefa í félagsheimilinu, en tveir hafi jafnan dugað þeim. Kjörstjórn þurfi svo að lesa hvern einasta kjörseðil og hvert einasta nafn, tvisvar. Því er beint til kjósenda að skrifa skýrt og greinilega, þannig að enginn vafi leiki á því við hvern er átt. Dalamenn geta valið milli yfir fimm hundruð nafna, þegar þeir kjósa nýja fulltrúa í sveitarstjórn. Það er stærsta sveitarfélagið þar sem fara fram óbundnar kosningar.

Go to News Site